01 október 2025

/

​Nýtt og notendavænt umsóknarviðmót byggingarleyfa

{image.Description}
HMS
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, heldur ávarp á fundinum.

14 sveitarfélög með samtals 45% íbúða á landinu hafa tekið í notkun nýtt og notendavænt umsóknarviðmót byggingarleyfa. Reykjavíkurborg bættist nýverið í hópinn og af því tilefni bauð Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, til opins fundar í dag undir merkjunum Loksins eitt umsóknarkerfi byggingarleyfa fyrir öll sveitarfélög.

Fundurinn markaði tímamót við innleiðingu verkefnisins „Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað“. Markmið þess er að stuðla að styttri afgreiðslufresti, einfaldari samskiptum og aukinni sjálfvirkni.

„Ég er afar stolt af þessum árangri en við stoppum ekki hér, við höldum ótrauð áfram,“ sagði Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í ávarpi sínu á fundinum.

„Ríkisstjórnin hefur einsett sér að ráðast í verkefni sem fela í sér einföldum stjórnsýslu og meira gagnsæi og skilvirkni fyrir alla.“

Stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði orðin tengd við samræmda umsóknarkerfið árið 2027.

Sveitarfélög þar sem umsóknarviðmót er aðgengilegt nú þegar eru eftirfarandi:

  • Árneshreppur
  • Dalabyggð
  • Fljótsdalshreppur
  • Húnabyggð
  • Kaldrananeshreppur
  • Langanesbyggð
  • Norðurþing
  • Reykhólahreppur
  • Reykjanesbær
  • Reykjavíkurborg
  • Súðavíkurhreppur
  • Strandabyggð
  • Tjörneshreppur

Myndir af fundinum:

Sjá einnig kynningarmyndband um verkefnið Byggingarleyfi á Íslandi - allt á einum stað.