03 október 2025

/

Auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

{image.Description}
Hari

Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Ráðuneytið veitir slíka styrki til eins árs í senn.

Áhersla verður lögð á verkefni og viðburði sem snúa að baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og munu þau verkefni njóta forgangs í ár.

Við úthlutun er horft til þess hvort;

  • verkefni hafi gildi og mikilvægi fyrir jafnréttismál,
  • verkefni búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hafi skýr markmið og mælikvarða.

Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutun má finna í úthlutunarreglum.

  • Umsóknarfrestur er til miðnættis 24. október 2025.
  • Sótt er um í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
  • Hver einstakur styrkur getur numið að hámarki tveimur milljónum króna. 
  • Heildarupphæð til ráðstöfunar haustið 2025 er 10.000.000 kr.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast með öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga né einstaklinga (að þeim undanskildum sem sækja um styrk vegna doktorsverkefna). Ekki eru veittir rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða. Til að umsókn verði tekin gild skulu henni fylgja þær upplýsingar og gögn sem óskað er eftir á umsóknarvef.

Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum gegnum netfangið [email protected].

Sex styrkir veittir á síðasta ári

Á síðasta ári úthlutaði ráðherra jafnréttismála styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála. Þar á meðal voru styrkir veittir til Kvennaárs 2025 og UN Women. 

Nánari upplýsingar um styrki ársins 2024 má nálgast hér.