06 október 2025

/

Alþjóðlegur fundur um baráttu gegn mansali haldinn í Reykjavík

{image.Description}
Alexandra Donskova-Huber, Kari Johnstone, Haukur Guðmundsson og Petya Nestorova

Þann 30. september síðastliðinn fór fram umfangsmikill fundur um aðgerðir gegn mansali. Fundurinn var á vegum Evrópuráðsins í samstarfi við dómsmálaráðuneytið, þar sem fjallað var um næstu skref Íslands í innleiðingu á ráðleggingum GRETA-nefndarinnar og framkvæmd Evrópuráðssamningsins um aðgerðir gegn mansali. Fundurinn var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og sóttu hann fjöldi innlendra og erlendra sérfræðinga og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) var í áheyrnarhlutverki.

Íslensk stjórnvöld staðráðin í að styrkja baráttuna gegn mansali

Steinunn Valdís Óskarsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu jafnréttismála, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Petya Nestorova framkvæmdastjóri samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali

Fundinn setti Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, sem flutti ávarp fyrir hönd Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Hann lagði áherslu á að íslensk stjórnvöld væru staðráðin í að styrkja baráttuna gegn mansali með skýrum lagabreytingum, auknu fjármagni til lögreglu og alþjóðlegu samstarfi.

Samvinna mikilvæg til að uppræta mansal

Petya Nestorova, framkvæmdastjóri samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali, ávarpaði fundinn og minnti á mikilvægi samvinnu ríkja til að berjast gegn þeirri samfélagslegu meinsemd sem mansal er.

Á fundinum var m.a. fjallað um:

  • aðgengi þolenda mansals að réttlátri málsmeðferð, lögfræðiaðstoð og bótum,
  • vernd vitna og þolenda í sakamálum,
  • þjálfun og sérhæfingu yfirvalda í rannsókn og saksókn mansalsmála,
  • forvarnir og aðgerðir gegn mansali í tengslum við vinnumarkað og börn,
  • samhæfingu aðgerða og alþjóðlegt samstarf

 

Sérfræðingar Evrópuráðsins og GRETA-nefndarinnar leiddu umræður á fundinum og meðal erlendra gesta voru:

  • Petya Nestorova, framkvæmdastjóri samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali
  • Helga Gayer, sérfræðingur hjá Evrópuráðinu og fyrrum forseti GRETA-nefndarinnar
  • Yuriy Paltsev, sérfræðingur hjá Evrópuráðinu
  • Kari Johnstone, sérstakur fulltrúi ÖSE í baráttunni gegn mansali
  • Alexandra Donskova-Huber, sérfræðingur hjá ÖSE

Fjölmargir íslenskir þátttakendur tóku þátt í fundinum, þ.á.m. fulltrúar frá lögreglu, ákæruvaldi, Útlendingastofnun, Fangelsismálastofnun, mannréttindasamtökum, stéttarfélögum og frjálsum félagasamtökum.

Í lok fundarins var lögð áhersla á mikilvægi þess að þróa nýja landsáætlun gegn mansali árið 2026, byggða á ráðleggingum GRETA, og efla samvinnu stofnana bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.