09 október 2025
/
Norrænir ráðherrar ræða stöðu drengja og bakslag í jafnréttismálum
Norrænir ráðherrar jafnréttismála funduðu í Tavastehus í Finnlandi 7. október þar sem meðal annars var rætt um stöðu jafnréttismála á tímum fjölþáttaógna og breytt viðhorf drengja og ungra karla til jafnréttis. Ráðherrarnir sammæltust um að efla enn frekar stuðning og og samvinnu á sviði jafnréttismála. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála sat fundinn fyrir hönd Íslands.
„Norðurlöndin hafa lengi verið forysturíki í jafnréttismálum. Við höfum byggt upp samfélög þar sem jafnrétti er grunnstoð velferðar og lýðræðis. En við þurfum að halda áfram að verja þessi gildi og tryggja að næstu kynslóðir, ungt fólk af öllum kynjum, finni sig í jafnréttisbaráttunni,” segir ráðherra.
Ráðherrarnir voru sammála um að teikn væru á lofti um bakslag á sviði kynja- og hinseginjafnréttis og ræddu mikilvægi þess að standa vörð um áunnin réttindi. Þá voru ráðherrarnir sammála um að mikilvægt væri að sameinast um áherslur og aðgerðir í jafnréttismálum á alþjóðlegum vettvangi.
Fjölþáttaógnir og áhrif á ungt fólk
Á fundinum fór meðal annars fram umræða um fjölþáttaógnir og hvernig árangursríkast væri að mæta öfgafullum skilaboðum til ungs fólks á samfélagsmiðlum. Ráðherrann lagði áherslu á að slík skilaboð væru oft hluti af víðtækari tilraunum til að sundra samfélögum Norðurlanda.
„Það eru ekki einungis vel skipulögð samtök sem vilja grafa undan jafnrétti og ala á ótta, heldur einnig óvinveitt ríki sem vilja veikja lýðræðislegar stoðir okkar,“ sagði Þorbjörg. „Markmið þessara ógna er að skapa óvissu, og jafnréttismál liggja því oft vel við höggi.“
Samstarf við Evrópuráðið
Finnar og Álandseyingar hafa gegnt formennsku í norrænu ráðherranefndinni á árinu og lagt áherslu á aðgerðir til að mæta vaxandi alþjóðlegum áskorunum, fyrirbyggja kynbundið ofbeldi, bæta norræna þekkingu á heilsu og velferð hinsegin fólks, stuðla að jöfnum launum og kortleggja áskoranir karla í jafnréttismálum. Danir taka við formennsku á næsta ári og hyggjast meðal annars stuðla að víðtækari samstöðu um svokallaða Kaupmannahafnaryfirlýsingu um mannréttindi kvenna.
Michael O’Flaherty, mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, flutti erindi um áskoranir Evrópu vegna þverrandi stuðnings við grundvallarmannréttindi. Í kjölfar þess samþykktu ráðherrarnir að efna til evrópskrar ráðstefnu um réttindi hinsegin fólks í samstarfi við Evrópuráðið á næsta ári.