10 október 2025
/
Jöfnunarsjóður: Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga árið 2025
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2025. Tillagan er samþykkt á grundvelli 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr.
Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Framlagið er einungis greitt hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.
Framlögin hafa komið til greiðslu að fjárhæð 1.050 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.