24 október 2025
/
Fjölþjóðleg jafnréttisráðstefna í París
Hátt í sextíu ríki sem leggja áherslu á jafnrétti í utanríkisstefnu sinni komu saman í París í vikunni þar sem frönsk stjórnvöld stóðu fyrir fjórðu alþjóðaráðstefnunni um jafnrétti og jafnréttismiðaða utanríkisstefnu.
Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, setti ráðstefnuna og ávarpaði einnig í lokin en Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og vararáðuneytisstjóra, var fulltrúi Íslands og tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni, annars vegar um aðgerðir til að sporna við bakslagi í jafnréttismálum, meðal annars í netheimum, og hins vegar um markmið og árangur jafnréttismiðaðrar utanríkisstefnu. Næsta ráðstefna verður haldin á Spáni að ári liðnu.
Í yfirlýsingu fundarins var lögð áhersla á eflingu mannréttinda kvenna og stúlkna um allan heim, þ.m.t. rétt þeirra til að taka ákvarðanir um eigið líf og líkama, og útrýmingu kynbundins ofbeldis, þátttöku karla og drengja í jafnréttisbaráttunni og mikilvægi kvennahreyfingarinnar hvarvetna til að stuðla að framgangi þessara réttinda. Ríkin sem tóku þátt í ráðstefnunni staðfestu einnig tilverurétt fjölbreyttra fjölskyldna og mikilvægi þátttöku kvenna og ungs fólks í ákvarðanatöku, stjórnmálum og efnahagslífi. Að lokum sammæltust þau um að vinna að jafnrétti innan stjórnkerfa og styrkja samvinnu á alþjóðavettvangi til að ná fimmta heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti kynjanna.
Í heimsókn sinni til Parísar fundaði Bergdís Ellertsdóttir einnig með David Bertolotti, aðstoðarráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis Frakklands. Á fundinum gafst tækifæri til að ræða tvíhliða samstarf Íslands og Frakklands, m.a. á sviði varnar- og öryggismála, en nýlega var skrifað undir viljayfirlýsingu um eflingu tvíhliða varnarsamstarfs ríkjanna. Þá var rætt á fundinum um samstarf á sviði alþjóða- og Evrópumála, stöðuna í Úkraínu, málefni norðurslóða og hafsins.