14 nóvember 2025
/
Sex verkefni á sviði jafnréttismála hljóta styrk
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála en heildarfjárhæð styrkjanna er níu milljónir króna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli reglna um úthlutun styrkja sem ráðherra jafnréttismála veitir til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála.
Styrkirnir voru auglýstir 3. október sl. en í ár var lögð sérstök áhersla á verkefni og viðburði sem snúa að baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Alls bárust ellefu umsóknir og var heildarfjárhæð sem sótt var um 24.659.000 kr. Starfshópur í dómsmálaráðuneytinu fór yfir umsóknir og gerði tillögu um úthlutun til ráðherra.
Þau verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni eru:
Samtök um kvennaathvarf – 2.000.000 kr.
- Spjallbox á vef Kvennaathvarfsins - Samtök um kvennaathvarf til að koma á fót rafrænu spjallboxi á vefsíðu kvennaathvarfsins þar sem hægt verður að spjalla við ráðgjafa á ýmsum tungumálum.
Ragheb A. J. Besaiso - Doktorsrannsókn – 2.000.000 kr.
- Doktorsrannsókn - Menntaðar flóttakonur frá Miðausturlöndum: Tungumálaáskoranir á íslenskum vinnumarkaði - Rannsóknin beinir sjónum að áskorunum menntaðra flóttakvenna frá Miðausturlöndum á íslenskum vinnumarkaði til að greina hvernig mismikil þekking á íslensku hefur áhrif á inngildingu þeirra, samskipti og faglega aðlögun.
Barnaheill – 1.265.000 kr.
- Ungmennaþing víða um land um ofbeldi i nánum samböndum - Röð ungmennaþinga víða um land fyrir fólk á aldrinum 15 til 18 ára, til að ræða ofbeldi í nánum samböndum, einkum kynferðisofbeldi.
Heimili og skóli - landssamtök foreldra – 500.000 kr.
- Netöryggisfræðsla - Verkefnið felst í endurnýjun og þróun fræðslu um netöryggi, stafræna hegðun og ábyrgð barna og ungmenna á netinu. Fræðslan miðar að því að efla vitund, þekkingu og færni ungs fólks í öruggri og ábyrgrar notkun stafrænnar tækni.
Háskólinn í Reykjavík – 1.235.000 kr.
- Kyrkingartak: Ein grófasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis - Til að standa fyrir heilsdags ráðstefnu þar sem fjallað verður sérstaklega um kyrkingartak, sem er ein grófasta birtingarmynd heimilisofbeldis og nauðungarstjórnunar.
W.O.M.E.N. in Iceland – 2.000.000 kr.
- Þekking brýtur hringrásina - Verkefnið miðar að því að efla og styrkja konur af erlendum uppruna á Íslandi með því að veita þeim fræðslu, vitund og aðgang að úrræðum sem gera þeim kleift að koma í veg fyrir og bregðast við kynbundnu ofbeldi.