17 nóvember 2025

/

Metnaðarfull skref í þágu hinsegin samfélagsins

{image.Description}
Hari

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, kynnti nýja aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn föstudag. Nýja aðgerðaáætlunin tekur við af gildandi aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks í upphafi árs 2026 og nær út árið 2029.

„Íslendingar hafa náð langt í réttindabaráttu hinsegin fólks. Stjórnvöld vilja ná enn lengra í að tryggja réttindi þessa hóps til jafns við aðra. Næsta skref felst í því að tryggja framkvæmd aðgerðanna í samvinnu við viðeigandi ráðuneyti og hagaðila. Þannig munum við halda áfram uns hinsegin fólk býr við sömu réttindi, aðstæður og virðingu og annað fólk í samfélaginu og jafnvel þá megum við ekki sofna á verðinum eins og dæmin sanna,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmála- og jafnréttisráðherra.

Áætlunin felur í sér 35 aðgerðir í níu undirflokkum til að stuðla að umbótum í mannréttindum og lífsgæðum hinsegin fólks. Hægt verður að fylgast með framvindu aðgerðaáætlunarinnar á mælaborði hinsegin áætlunarinnar á heimasíðu ráðuneytisins.

35 fjölbreyttar aðgerðir

Nokkrar aðgerðir innan aðgerðaáætlunarinnar snúa að því að styðja hinsegin börn, stuðla að því að námsefni skóla endurspegli fjölbreytt samfélag, fræða starfsfólk skóla um hinseginleika og framkvæma reglulegar úttektir á líðan hinsegin barna og ungmenna.

Stofnaður verður starfshópur til að greina áskoranir og leiðir til að jafna foreldrarétt samkynja para til jafns við gagnkynja para og efnt til vitundarvakningar meðal ungs fólks um hatursorðræðu gagnvart hinsegin fólki. Þá verður framkvæmd rannsókn á margþættri mismunun gagnvart hinsegin fötluðu fólki. Liður í rannsókninni verður mótun tillagna um úrbætur í þágu þessa hóps.

Af öðrum aðgerðum innan nýju aðgerðaáætlunarinnar má nefna umbótaaðgerðir lögreglu til stuðnings hinsegin samfélaginu, eflingu hinsegin menningar, stuðning við inngildingu í háskóla og þátttöku í hinsegin mannréttindi á alþjóðavísu. Þá stuðla nokkrar aðgerðir að fræðslu til hópa á borð við fulltrúa í sveitarstjórnum, starfsfólks sveitarfélaga, starfsfólk í öldrunarþjónustu og lögreglu um hinsegin málefni.

Víðtækt samráð við þróun áætlunarinnar

Þróun aðgerðaáætlunarinnar hefur falið í sér undirbúningsvinnu og víðtækt samráð við hagsmunaaðila frá því á vormánuðum 2025. Samráðið leiddi meðal annars í ljós að brýn þörf væri fyrir frekari rannsóknir á fræðasviði hinsegin mála. Brugðist er við því með áformum um að kanna hvort raunhæft væri að koma á fót rannsóknasetri í hinsegin fræðum innan Háskóla Íslands. Starfsemi setursins myndi byggjast á nánu samstarfi viðeigandi fræðasvið innan háskólans.

Ísland er ein af forystuþjóðum Evrópu á svið hinsegin mannréttinda. Íslendingar eru í 1. sæti á Tgue-réttindakorti transfólks í Evrópu og í 3. sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe, réttindasamtaka hinsegin fólks í Evrópu og Mið- Asíu. Við þróun aðgerðaáætlunarinnar var m.a. horft til ábendinga réttindasamtakanna um afnám banns við blóðgjöf karla sem stunda kynlíf með öðrum körlum og aðgerðir í þágu hinsegin hælisleitenda svo dæmi séu nefnd.