18 nóvember 2025
/
250 milljóna styrkur til stafrænnar nýsköpunar
Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (e. European Digital Innovation Hub) hefur hlotið styrk upp á rúmar 250 milljónir króna frá framkvæmdastjórn ESB. Með þessum styrk mun miðstöðin, sem oft gengur undir skammstöfuninni EDIH-IS, halda sínu starfi áfram í þrjú ár til viðbótar. Verkefnið verður leitt af Rannsóknamiðstöð Íslands – Rannís, í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Auðnu tæknitorg og Almannaróm.
EDIH-IS er samstarfsvettvangur sem sameinar innlenda sérfræðiþekkingu og getu í gervigreind, notkun ofurtölva og netöryggi til að efla stafræna nýsköpun, bæði í opinbera- og einkageiranum. Samstarfsnetið miðar að því að stuðla að stafrænni umbreytingu í hinum ýmsu atvinnugreinum.
Áframhaldandi tenging við evrópskt þekkingarsamfélag mikilvæg fyrir Ísland
Heildarumfang verkefnisins er um hálfur milljarður íslenskra króna. Verkefnið er styrkt að helmingi af Digital Europe-áætlun Evrópusambandsins, sem veitir einnig aðgang að umfangsmiklu evrópsku þekkingarsamfélagi. Íslensku samstarfsaðilarnir leggja til hinn helminginn í formi vinnu, húsnæðis og verkefnafjármagns. Tilgangur verkefnisins er að bjóða áfram upp á þjónustu sem styður lítil og meðalstór fyrirtæki sem og opinberar stofnanir í stafrænum umbreytingum. EDIH mun vinna náið með nýrri miðstöð fyrir gervigreind og stórvirka tölvuvinnslu (e. HPC) á Íslandi ásamt því að styðja menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið við frammkvæmd aðgerðaráætlunar um gervigreind 2025-2027.
Samstarfsaðilar verkefnisins
- Rannís gegnir tvíþættu hlutverki í verkefninu. Rannís fer með verkefnastjórn á EDIH-IS og styður þannig við áframhaldandi uppbyggingu verkefnisins. Stofnunin leiðir einnig þann hluta EDIH-IS sem snýr að aðgangi að fjármagni og aðstoðar aðila m.a. við að sækja um evrópska styrki fyrir stafræn nýsköpunarverkefni. Rannís leiðir einnig vinnuhópinn Women in AI.
- Almannarómur er nýr þátttakandi í EDIH-IS. Almannarómur mun sinna mikilvægum stuðningi við uppbyggingu vistkerfis gervigreindar á Íslandi og út fyrir landsteinana, en Almannarómur er einnig stofnaðili samnorrænu gervigreindarmiðstöðvarinnar New Nordics AI sem styrkir norrænt samstarf og ábyrga þróun gervigreindar.
- Auðna tæknitorg stendur reglulega fyrir vinnustofum og námskeiðum fyrir háskólasamfélagið, rannsakendur og styrkþega rannsóknarsjóða. Þá leggja þau áherslu á tækniyfirfærslu fyrirtækja og stofnana, m.a. með ráðgjöf við markaðsstarf, hugverkavernd og samningagerð.
- Háskóli Íslands er leiðandi í stórtækri tölvuúrvinnslu og heldur áfram að tengja saman vísindamenn, iðnað og stofnanir sem nota stórtæka tölvuúrvinnslu í rannsóknum og nýsköpunum. HÍ gegnir einnig lykilhlutverki í ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana ásamt fræðslu og menntun, þróun og aðlögun gervigreindarlausna og prófana og hefur gríðarlega reynslu af stórum evrópskum samstarfsverkefnum.
- Háskólinn í Reykjavík býður áfram upp á meistaranám í gervigreind sem sett var á laggirnar í fyrri lotu EDIH-IS. Í náminu er lögð áhersla á siðferðilega nálgun á gervigreind í samræmi við evrópsk gildi. HR býður upp á frábæra og sérhæfða aðstöðu til rannsókna, þróana og prófana á gervigreindarlausnum, ásamt því að fræða almenning, fyrirtæki og stofnanir um gervigreind.
Ofangreindir fimm samstarfsaðilar verkefnisins munu saman þróa þjónustu EDIH enn frekar og efla þannig tækifæri um notkun gervigreindar á Íslandi.
Nánari upplýsingar má nálgast á vef Rannís.