12 desember 2025
/
Áfallaþol á grundvelli viðmiða Atlantshafsbandalagsins - Áfangaskýrsla
Í desember 2024 skipuðu stjórnvöld stýrihóp til að kanna áfallaþol íslensks samfélags með hliðsjón af sjö grunnviðmiðum Atlantshafsbandalagsins. Verkefnið er samstarfsverkefni dómsmálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis, forsætisráðuneytis og embætti ríkislögreglustjóra. Verkefnið miðar að því að kortleggja stöðu landsins og móta heildræna nálgun stjórnvalda að eflingu áfallaþols.
Skýrslan veitir yfirlit yfir stöðu áfallaþols á Íslandi út frá íslenskum aðstæðum og alþjóðlegu samhengi og er ætluð sem grunnur og leiðarvísir fyrir áframhaldandi vinnu við eflingu samfélagslegs öryggis og viðbúnaðar.