13 desember 2025
/
Svæðisráð skipað um strandssvæðisskipulag fyrir Vestfirði
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Vestfirði. Skipunin er gerð samkvæmt lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
Fulltrúar í svæðisráði bera ábyrgð á gerð strandsvæðisskipulags, eða endurskoðun þess, og starfa í umboði ráðherra. Skipulagsstofnun er svæðisráði til ráðgjafar og stofnunin leggur svæðisráði til aðstöðu og starfsmann vegna funda ráðsins.
Skipunartími svæðisráðsins er þar til að loknum næstu alþingiskosningum.
Svæðisráðið er þannig skipað:
Aðalsteinn Óskarsson, formaður, skipaður án tilnefningar,
Hulda Birna Albertsdóttir, varamaður formanns, skipuð án tilnefningar.
Aðalfulltrúar tilnefndir af aðliggjandi sveitarfélögum:
Hafdís Sturlaugsdóttir,
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir,
Jóhann Birkir Helgason.
Varafulltrúar tilnefndir af aðliggjandi sveitarfélögum:
Aníta Björk Pálínudóttir,
Þorgeir Pálsson,
Freyja Ragnarsdóttir.
Fulltrúar innviðaráðuneytis:
Katrín Pálsdóttir, aðalfulltrúi,
Friðfinnur Skaftason, varafulltrúi.
Fulltrúar atvinnuvegaráðuneytis:
Agnar Bragi Bragason, aðalfulltrúi,
María Reynisdóttir, varafulltrúi.
Fulltrúar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis:
Freydís Vigfúsdóttir, aðalfulltrúi,
Björg Finnbogadóttir, varafulltrúi.
Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Jón Páll Hreinsson, aðalfulltrúi,
Gerður Björk Sveinsdóttir, varafulltrúi.