19 febrúar 2026
/
Lög samþykkt á Alþingi: Ein öflug stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála
Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinast. Allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, er nú á höndum einnar stofnunar.
Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Starfsemin sameinast þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renna inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og heiti stofnunarinnar verður Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Stofnanirnar hafa síðustu mánuði unnið að samrunanum.
„Sameiningin mun skila okkur enn öflugri stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála. Markmiðið er að efla getu hins opinbera í skipulagsmálum, bæta yfirsýn og stuðla að betri samþættingu málaflokka. Með þessu mætum við líka auknu ákalli um yfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.