27 febrúar 2026

/

Ný forvarnaáætlun til að vernda börn og ungmenni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi kynnt

{image.Description}

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti nýja forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi meðal barna og ungmenna í ríkisstjórn í morgun. Áætlunin hefur það að markmiði að koma á og viðhalda skipulögðum forvörnum meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Áætlunin gildir fyrir árin 2026-2030 og tekur við af fyrri áætlun sem gilti til loka árs 2025. 

„Kynferðislegt og kynbundið ofbeldi gegn börnum og ungmennum er alvarlegt samfélagsmein sem við ætlum ekki að sætta okkur við. Það er algjört forgangsmál að vernda börn og ungmenni og með þessari forvarnaáætlun erum við að grípa til markvissra aðgerða til að koma í veg fyrir að slíkt ofbeldi eigi sér stað. Við ætlum að tryggja að börn njóti öryggis, hvort sem er í skóla, tómstundum eða í stafrænum heimi,” segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála. 

Áætlunin inniheldur 23 aðgerðir í fimm köflum: Almennar aðgerðir - Stafrænt kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni – Fræðsla - Leiðbeiningar, verkferlar og gátlistar - og Eftirfylgni og mat á árangri.

Áhersla á öryggi barna í stafrænum heimi

Sérstök áhersla er lögð á aðgerðir til að tryggja öryggi barna og ungmenna í stafrænum heimi, þar sem hættur geta leynst og birtingarmyndir ofbeldis tekið á sig nýjar myndir. Áætlunin kveður á um fræðslu og stuðning til starfsfólks, foreldra og forráðamanna til að efla getu þeirra til að koma í veg fyrir og bregðast við þeim hættum sem stafrænt umhverfi getur skapað börnum og ungmennum.

Meðal aðgerða er heildstætt mat á samfélagslegum kostnaði vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og ungmennum, aðgerð um að styrkja og skýra hlutverk samfélagslögreglu sem lykilsamstarfsaðila í ofbeldisforvörnum og aðgerð um starfshóp sem kanna skuli hvernig tryggja megi öllum börnum í tómstundastarfi utan skóla aðgang að sambærilegri þjónustu og samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs býður upp á. Þá er einnig lögð áhersla á fræðslu til starfsfólks sem starfar með börnum og ungmennum.

Stýrihópur, undir formennsku dómsmálaráðuneytisins, verður skipaður til að fylgja framkvæmd og innleiðingu áætlunarinnar eftir. Jafnframt verður sett upp mælaborð þar sem almenningur og hagaðilar geta fylgst með framvindu aðgerða.

Við þróun og vinnslu forvarnaáætlunar var áhersla lögð á samráð, m.a. með rýnihópum þar sem ungmenni á framhaldsskólaaldri fengu tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi meðal barna og ungmenna