30 apríl 2026
/
Kynnti fyrstu landsáætlunina gegn kynbundnu ofbeldi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum fyrir árin 2026 til 2030. Þetta er fyrsta áætlun sinnar tegundar hér á landi og markar þáttaskil í nálgun stjórnvalda.
„Það er von mín að áætlunin verði til þess að auka bæði öryggi og öryggistilfinningu kvenna út í samfélaginu og í öllum okkar kerfum. Það er höfuðmarkmiðið með landsáætluninni,“ segir dómsmálaráðherra.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er talað skýrt um að taka eigi fast á kynbundnu ofbeldi og mansali. Ísland hefur fullgilt svokallaðan Istanbúlsamning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Fyrir fjórum árum benti eftirlitsnefnd samningsins á að þótt mörg mikilvæg skref hefðu verið stigin í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi væri líka margt ógert.
Aðstaða þolenda í dómhúsi bætt
Í áætluninni sem kynnt var í morgun eru settar fram 25 tímasettar aðgerðir. Þær fela meðal annars í sér samræmingu á verklagi og fræðslu til fagstétta um kynbundið ofbeldi, gagnaöflun um allar tegundir kynbundins ofbeldis og auknar rannsóknar á sviðinu.
Sem dæmi um aðgerðir má nefna að bæta á aðstöðu í dómhúsi og tryggja þannig að brotaþolar geti gefið skýrslu án þess að sjá sakborning til að takmarka sálrænan skaða. Verklag verður samræmt í heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum. Unnið verður að breytingum á ákvæðum almennra hegningarlaga þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði þyngd og ekki hægt að ljúka þeim málum með sektargerð. Þá verður skoðað hvort rétt sé að gera breytingar á lögum um meðferð sakamála til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál fara fyrir dómstóla.
Aðgerðunum verður fylgt eftir með mælaborði á vef dómsmálaráðuneytisins sem uppfært verður reglulega.
Rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum fyrsta aðgerðin
Í ræðu sinni í morgun lagði dómsmálaráðherra áherslu á að kynbundið ofbeldi væri ein alvarlegasta birtingarmynd kynjamisréttis og brot gegn mannréttindum kvenna og stúlkna. Með aðgerðunum væri brugðist við þessu með heildstæðum hætti.
„Fyrr í vikunni var frumvarp mitt til betri laga gegn eltihrellum samþykkt á Alþingi – um rafrænt eftirlit samhliða nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Með þessu bregðumst við við frásögnum þolenda og tökum mikilvæg skref til að tryggja öryggi þeirra. Þar með er einni aðgerð landsáætlunarinnar lokið – og gefur okkur vonandi byr undir báða vængi inn í innleiðingu hinna tuttugu og fjögurra,“ segir dómsmálaráðherra