06 maí 2026

/

Þrjú verkefni áfram í lokaval jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur 2026

{image.Description}
Valnefndin í ár frá vinstri: María Rún Bjarnadóttir, Vilhjálmur Hilmarsson, Petra Bayr, þingforseti Evrópuráðsþingsins, Sandra Konstatzky og Kristín A. Árnadóttir. Á myndina vantar Robert Biedroń og Petra Stienen

Valnefnd jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur hefur tilkynnt hvaða þrjú verkefni komast áfram  í lokaval verðlaunanna. Nefndinni bárust rúmlega 300 umsóknir víðs vegar að úr heiminum en 100 verkefni uppfylltu sett skilyrði.

Verkefnin þrjú sem koma til greina í lokavalinu eru:

  • My Voice, My Choice (Slóvenía) - Grasrótarhreyfing sem berst fyrir yfirráðarétt kvenna yfir líkama sínum og jöfnu aðgengi að þungunarrofi. Samtökin hafa þegar safnað 1.2 milljónum undirskrifta og haft töluverð áhrif á framvindu mála í Evrópuþinginu. 
  • SASANE (Nepal) - Samtök sem starfrækt eru af þolendum mansals og kynferðisofbeldis. Samtökin þjálfa konur, sem orðið hafa fyrir ofbeldi, í lögfræðitengdum málefnum. Samtökin hafa þegar komið að 1.500 lögsóknum og bjargað 238 konum og stúlkum. 
  • Girl Child Counselling Women Group (Kenía) - Samtök sem styðja börn, stúlkur og ungar mæður sem þjást af HIV/AIDS og búa við sára fátækt. Með það að markmiði að koma í veg fyrir mansal og kynlífsþrælkun. 

Verðlaunin afhent í lok júní

Jafnréttisverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur eru nú veitt í þriðja sinn. Þau eru sameiginlegt framtak íslenskra stjórnvalda og þings Evrópuráðsins og er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem með einstökum hætti hafa stuðlað að valdeflingu kvenna. Sex eru skipuð í valnefndina, bæði fulltrúar íslenskra stjórnvalda og Evrópuráðsþingsins.

Verðlaunin verða afhent með formlegum hætti þegar sumarþing Evrópuráðsins verður sett í Strassborg mánudaginn 22. júní.  Verðlaunahafinn fær 60.000 evrur í verðlaunafé sem íslensk stjórnvöld greiða, viðurkenningarskjal og verðlaunagrip.  Verðlaunagripurinn er listaverkið Kvika eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur en það er unnið úr íslensku hrauni og gleri.

Grasrótahreyfingin Irida Women’s Center í Grikklandi hlaut verðlaunin fyrst árið 2024. Hreyfingin vinnur að jákvæðum breytingum í lífi kvenna sem búa við fátækt. félagslega einangrun og kynbundið ofbeldi.  Árið 2025 hlutu palestínsku samtökin Women of the Sun verðlaunin en samtökin stuðla að valdeflingu palestínskra kvenna með því að styrkja rödd þeirra og áhrif í stjórnmálum og viðskiptalífi innan Palestínu og á alþjóðlegum vettvangi. 

Nánar er hægt að kynna sér Jafnréttisverðlaun Vigdísar á vef þeirra.