03 júní 2026

/

Undirbýr fullgildingu samþykktar um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum

{image.Description}

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað vinnuhóp sem ætlað er að undirbúa fyrirhugaða fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 190 um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum.


Hlutverk vinnuhópsins er að greina efni samþykktarinnar og leggja mat á hvort og þá hvaða breytingar á íslenskri löggjöf fullgilding hennar hefur í för með sér.


„Ofbeldi og áreitni eiga ekki að líðast á vinnumarkaði. Með vinnunni sem nú er farin af stað leggjum við grunninn að því að styrkja vernd starfsfólks og stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.


Dr. María Rún Bjarnadóttir er formaður vinnuhópsins. Auk hennar eiga fulltrúa í hópnum Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Bandalag háskólamanna (BHM), Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), fjármála- og efnahagsráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samgöngustofa, Samtök atvinnulífsins og Vinnueftirlit ríkisins.


Samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190 fjallar um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum og hefur það að markmiði að stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi þar sem virðing er borin fyrir réttindum starfsfólks. Hluti samþykktarinnar fellur undir málefnasvið innviðaráðuneytisins.


Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir lok árs og að í kjölfar þess verði unnt að ganga frá fullgildingu samþykktarinnar hér á landi, meðal annars með viðeigandi lagabreytingum þar sem við á.