05 júní 2026

/

Ísland fullgildir samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um réttindi og öryggi starfsfólks

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, með fullgildingarskjöl Íslands ásamt Gilbert F. Houngbo, framkvæmdastjóri Alþjóðamálastofnunarinnar (ILO).

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti í dag Gilbert F. Houngbo, framkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), fullgildingarskjöl Íslands fyrir tvær samþykktir stofnunarinnar. Um er að ræða samþykkt nr. 188 um vinnu við fiskveiðar og samþykkt nr. 191 um að öruggt og heilbrigt starfsumhverfi verði viðurkennt sem grundvallarréttindi.


Örugg og mannsæmandi starfsskilyrði við fiskveiðar


Með fullgildingu samþykktar ILO nr. 188 staðfestir Ísland skuldbindingu sína til að tryggja þeim sem starfa við fiskveiðar örugg og mannsæmandi starfsskilyrði. Samþykktin kveður meðal annars á um lágmarksréttindi starfsfólks, vinnu- og hvíldartíma, öryggi um borð og aðgang að heilbrigðisþjónustu.


Öruggt og heilbrigt starfsumhverfi sem grundvallarréttindi


Samþykkt ILO nr. 191 mælir fyrir um að öruggt og heilbrigt starfsumhverfi sé viðurkennt sem grundvallarréttindi á vinnumarkaði. Með fullgildingu hennar skuldbindur Ísland sig til að tryggja að öryggi og heilbrigði á vinnustöðum verði álitin sem grundvallarregla.


 

Á fundi ráðherra og framkvæmdastjóra ILO í Genf í dag ræddu þeir jafnframt mikilvægi alþjóðlegra vinnustaðla og þríhliða samráðs og skoðanaskipta við aðila vinnumarkaðarins við að mæta þeim breytingum sem eiga sér stað á vinnumarkaði.


„Með fullgildingu þessara samþykkta staðfestir Ísland skuldbindingu sína til að tryggja örugg og heilbrigð vinnuskilyrði og standa vörð um grundvallarréttindi fólks á vinnumarkaði,“ segir ráðherra.


Gilbert F. Houngbo fagnaði fullgildingunni og þakkaði Íslandi fyrir virkan þátt í starfi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og stuðning við markmið hennar um mannsæmandi vinnuskilyrði fyrir alla.


Fullgilding samþykktanna undirstrikar áframhaldandi stuðning Íslands við alþjóðlegt samstarf um bætt vinnuskilyrði, öryggi og velferð vinnandi fólks um allan heim.