15 júní 2026
/
Breytingar á atvinnuleysistryggingum samþykktar á Alþingi
Alþingi samþykkti í dag breytingar á atvinnuleysistryggingum. Meginmarkmið þeirra er að stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi fólks sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi. Því lengur sem fjarvera einstaklings frá vinnumarkaði varir þeim mun ólíklegra er að viðkomandi snúi til baka á vinnumarkað. Brýnt þótti því að fjarveran væri ekki of löng.
Breytt hámarkslengd
Bótatímabil atvinnuleysistrygginga er í dag 30 mánuðir sem er það lengsta á Norðurlöndunum. Nýju lögin fela í sér að frá og með 1. júlí nk. verður hámarkslengd bótatímabilsins 24 mánuðir. Breytingarnar taka þó ekki til einstaklinga sem þegar fá greiddar atvinnuleysisbætur
Breytt ávinnslutímabil
Í dag þarf atvinnuleitandi að hafa starfað á innlendum vinnumarkaði í 12 mánuði til að eiga 100% rétt til atvinnuleysistrygginga. Eftir 3 mánaða starf kann viðkomandi að hafa áunnið sér hlutfallslegan rétt til atvinnuleysisbóta. Þessu verður breytt þannig að frá og með 1. september teljast atvinnuleitendur ekki hlutfallslega tryggðir fyrr en eftir 7 mánuði á innlendum vinnumarkaði.
Aðrar breytingar á lögunum
Með nýju lögunum verður stjórnsýsla atvinnuleysistrygginga einfölduð og stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs lögð niður.
Aðrar breytingar á lögunum eru til dæmis þær að heimildir atvinnuleitenda til að stunda nám hafa verið skýrðar og einfaldaðar og desemberuppbót atvinnuleitenda verið lögfest.