18 júní 2026

/

Niðurstöður rannsóknar á einelti, áreitni og ofbeldi á íslenskum vinnumarkaði

{image.Description}

Samanburðarrannsókn um einelti, áreitni og ofbeldi á íslenskum vinnumarkaði er komin út en rannsókn sama efnis kom út árið 2019. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann bæði upphaflegu rannsóknina og samanburðarrannsóknina að beiðni Vinnueftirlitsins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. 


Niðurstöðurnar og frétt um þær má nálgast á vef Vinnueftirlitsins: Öll á vinnustað þurfa að taka höndum saman um að einelti, áreitni og ofbeldi sé ekki liðið


Starfshópur um áhrif heilbrigðrar vinnustaðamenningar á líðan starfsfólks


Vinnueftirlitið hefur í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið skipað starfshóp um áhrif heilbrigðrar vinnustaðamenningar á líðan starfsfólks á vinnustöðum með áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Markmiðið er að vekja vinnustaði landsins, bæði stjórnendur og starfsfólk, til umhugsunar og ábyrgðar um mikilvægi heilbrigðrar vinnustaðamenningar og áhrif hennar á líðan starfsfólks innan vinnustaðanna.


Starfshópurinn er skipaður fulltrúum Alþýðusambands Íslands, BSRB, BHM, embættis Landlæknis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins og VIRK, endurhæfingarsjóðs ses. og hefur þegar hafið störf.