23 júní 2026

/

Samningur um Jafnvægisvogina til að jafna hlut kynja í stjórnunarstöðum

{image.Description}
Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir við undirritun samnings um Jafnvægisvogina.

Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarinnar, undirrituðu þann 19.júní samstarfssamning um þróun og kynningu á verkefninu Jafnvægisvogin.

Jafnvægisvogin er verkefni Félags kvenna í atvinnulífinu og hefur það að markmiði að auka  jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi

„Við viljum með stuðningi við Jafnvægisvogina gera okkar til að styðja við verkefnið sem er tæki sem stuðlar að því að konur og karlar hafi jöfn tækifæri til áhrifa og ábyrgðar í atvinnulífinu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Hvatning til að gera enn betur í að jafna hlutfall kynja í stjórnunarstöðum

Jafnvægisvogin hefur á undanförnum árum haft jákvæð áhrif á vitund og aðgerðir fyrirtækja þegar kemur að jafnréttismálum. Samningurinn gerir FKA  mögulegt að halda áfram að þróa mælikvarða, fylgjast með framvindu verkefnisins og efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir. Markmiðið er að tryggja að fleiri fyrirtæki taki þátt og að áhrif verkefnisins verði enn sýnilegri í íslensku atvinnulífi.