07 júlí 2026

/

Áform um breytingar á vændisákvæði sett í samráðsgátt

{image.Description}

Dómsmálaráðuneytið hefur sett áform um breytingar á vændisákvæði hegningarlaga í samráðsgátt stjórnvalda. Afnema á sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum. Áformin er hægt að kynna sér hér.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst endurskoða refsirammann í þeim tilgangi að draga úr eftirspurn eftir vændi, stemma stigu við mansali í kynferðislegum tilgangi og sporna þannig við skipulagðri glæpastarfsemi. Sekt var afnumin sem viðurlagategund vændiskaupabrota í Svíþjóð á síðasta ári. 

Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvaða leið verði fyrir valinu en í áformunum kemur fram að við mögulegar leiðir við lagasetningu verði horft til löggjafar annarra Norðurlanda.