09 júlí 2026
/
Starfshópur metur nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar
Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar hefur tekið til starfa en hann er skipaður að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Hlutverk hópsins er að meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um aðgerðir, forgangsröðun og úrbætur.
Hópurinn mun einnig veita ráðgjöf um hvernig stjórnvöld geta stutt við öfluga uppbyggingu og innleiðingu gervigreindar á Íslandi og móta tillögur að samstarfi hins opinbera og atvinnulífsins um hagnýtingu gervigreindar.
Starfshópurinn er skipaður sérfræðingum utan Stjórnarráðsins sem hafa þekkingu á gervigreindarmálum. Í starfshópnum sitja:
- Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID, formaður
- Anna Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons
- Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins
- Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri, NVIDIA
- Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms
Með hópnum starfa fulltrúar úr forsætisráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Hópurinn mun skila tillögum sínum fyrir lok september nk.
Skipun starfshópsins byggir á grunni sem lagður er í stefnu Íslands um gervigreind og aðgerðaáætlun stjórnvalda um gervigreind. Þar er lögð áhersla á að móta sterkan grundvöll fyrir þróun og farsæla nýtingu gervigreindar á Íslandi.