Vönduð stefnumótun
Stefnuráð Stjórnarráðsins er samhæfingar- og samráðsvettvangur innan stjórnsýslunnar til að efla og bæta getu hennar til stefnumótunar.
Hlutverk stefnuráðsins er að:
- Móta viðmið (e. best practice) fyrir stefnumótun, áætlanagerð og stefnumótandi framsýni innan Stjórnarráðsins, að teknu tilliti til umfangs og eðlis viðfangsefnis. Styðji við þróun afurða opinberra fjármála, svo sem fjármálaáætlun og árangursmiðaða áætlanagerð eftir því sem við á.
- Efla og samhæfa vinnubrögð ráðuneyta með ráðgjöf og tilmælum og tillögum að fræðslu.
- Styrkja miðlæga starfsemi ráðsins og samhæfa undirbúning stefnumótunar þvert á Stjórnarráðið með gæðamati á stefnumótandi áformum ráðuneyta.
- Leiðbeina varðandi samspil stefna og áætlana við fjármagn, lagafrumvörp og þingsályktanir.
- Stuðla að upplýstri umræðu um tækifæri og ógnanir framtíðarinnar og verði virkur umræðuvettvangur um stefnumótandi framsýni.
- Leggja mat á tengingu mælikvarða við sérstakar áherslur ríkisstjórnarinnar, líkt og velsældaráherslur og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, og gerð leiðbeininga um notkun þeirra við stefnumótun m.a. við forgangsröðun verkefna, markmiðasetningu, mati á áhrifum og árangri m.t.t. skipulags og vinnulags við gerð fjárlagaafurða.
Verkfæri og handbækur
Upplýsingar um stefnumótun
Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins 2026
Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins 2021
Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins 2019
Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins 2017
Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins 2015
Sporbaugur stefnumótunar
Fulltrúar í stefnuráði
- Rósa Guðrún Erlingsdóttir, forsætisráðuneyti, formaður
- Hrefna Rós Matthíasdóttir, fjármála- og efnahagsráðuneyti, varaformaður
- Ása María H Guðmundsdóttir, atvinnuvegaráðuneyti
- Sólrún Halldóra Þrastardóttir, utanríkisráðuneyti
- Helgi Freyr Kristinsson, mennta- og barnamálaráðuneyti
- Tryggvi Haraldsson, félags- og húsnæðismálaráðuneyti
- Jóhanna Sigurjónsdóttir, innviðaráðuneyti
- Reynir Jónsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðuneyti
- Sigríður Jónsdóttir, heilbrigðisráðuneyti
- Sigríður Valgeirsdóttir, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
- Margrét Irma Jónsdóttir, dómsmálaráðuneyti
- Viðar Helgason, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Stefnur og áætlanir