19. okt. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Þróunarsamvinna, Úkraína, Alþjóðamál
Ársfundir Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Baráttan gegn fátækt líður fyrir þegar alþjóðlegum krísum fjölgar
Áskoranir í alþjóðahagkerfinu, efnahagslegur stuðningur við Úkraínu og leiðir til að draga úr ójöfnuði voru meðal umræðuefna á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fara fram í Bangkok í Taílandi dagana 12.–18. október. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fór fyrir sendinefnd Íslands og tók þar þátt í fjölda funda og viðburða um efnahagsmál, þróunarsamvinnu og samstarf ríkja.