Stefnur stofnana til þriggja ára
Á grundvelli laga um opinber fjármál skulu stofnanir (ríkisaðilar) í A1 hluta móta stefnu árlega fyrir starfsemi sína til að minnsta kosti næstu þriggja ára. Í stefnunni skal meðal annars greina frá markmiðum og almennum áherslum og hvernig þeim verði náð með tilliti til áætlaðra fjárveitinga. Gera skal grein fyrir mælikvörðum og viðmiðum sem lögð eru til grundvallar mati á árangri starfseminnar og niðurstöðum slíks mats fyrir næstliðin ár. Stefnumótun ríkisaðila skal staðfest af hlutaðeigandi ráðherra og skal hann gæta þess að markmið og áherslur séu í samræmi við gildandi stefnu fyrir það málefnasvið sem við á.
Í mælaborðinu hér að neðan má sjá stefnur þeirra stofnana sem ráðuneyti hafa samþykkt áætlun fyrir. Þá er einnig birt yfirlit yfir þróun samræmdra mælinga í rekstri þeirra sem snúa að bættri þjónustu, öflugri mannauði og sjálfbærari rekstri sem er mikilvægt skref í umfjöllun um árangur í ríkisrekstri.
Um mælaborðið:
Stofnanir setja sér markmið sem snúa að kjarnastarfsemi og rekstri. Á grunni markmiðs setja stofnanir sér mælikvarða og viðmið til þriggja ára um hvert stefnir ásamt aðgerðum til að ná markmiðum. Árangur í starfsemi er metinn út frá því hvort stofnun nái settum viðmiðum. Í mælaborðinu er einnig sýnd þróun rauntalna frá fyrra ári.
Markmið í kjarnastarfsemi skulu eftir fremsta megni vera í samræmi við markmið þess málaflokks sem stofnun tilheyrir samkvæmt fjármálaáætlun og virka þannig sem tenging á milli stefnumótunar ríkisstjórnar og starfsemi ríkisaðila.
Markmið í rekstri eru samræmd fyrir allar stofnanir og mælikvarðar byggjast á miðlægum gagnagrunni fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Markmiðin eru góð þjónusta, öflugur mannauður og sjálfbær rekstur. Gögn á bak við mælikvarðana koma meðal annars úr þjónustukönnun ríkisins og úr Stofnun ársins. Þá er hægt að sjá hversu mörg stafræn skref hver stofnun hefur tekið og hvert stofnanir stefna í innleiðingu lausna Stafræns Íslands til næstu þriggja ára. Til þess að ná miðlægum markmiðum er stofnunum sérstaklega bent á að horfa til áherslna í ríkisrekstri.
Stofnanir geta bætt við eigin markmiðum í rekstri eftir þörfum.
Mælikvarðar: Í einhverjum tilfellum eru ekki til gögn fyrir einstaka stofnanir sem útskýrir að mælikvarða vantar fyrir viðkomandi stofnanir. Á þetta t.d. við um þjónustukönnun ríkisins og stafræna færni.
Opinber fjármál