Kynjuð fjárlagagerð

Mótun fjármálaáætlunar og fjárlagafrumvarps felur í sér ákvörðun um félagslega og efnahagslega forgangsröðun stjórnvalda. Í ljósi ólíkrar stöðu kynjanna á ýmsum sviðum geta þessar ákvarðanir haft ólík áhrif á kynin.

Kynjuð fjárlagagerð er ferli þar sem samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða er beitt á fjárlagaferlið á öllum stigum. Kynjasjónarmið eru þannig fléttuð inn í stefnumótun og ákvarðanatöku og leitast er við að greina kynjaáhrif fjárlaga. Takmarkið er að ráðstafanir í ríkisfjármálum styðji við markmið stjórnvalda um jafnrétti kynjanna.

Lífshlaup karla og kvenna er um margt ólíkt og staða kynjanna einnig. Tekjuöflun og ráðstöfun opinbers fjár hefur því ólík áhrif á kynin.

Fimm ára áætlun

Fimm ára áætlun

Unnið er samkvæmt fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 sem var samþykkt í ríkisstjórn 26. október 2018.

Greiningarrammi fyrir jafnréttismat

Greiningarrammi fyrir jafnréttismat

Fimm skrefa aðferð sem er leiðarvísir við mat á kynja- og jafnréttisáhrifum. Greiningarramminn er í raun gagnvirkt glósublað.

Hagnýtt efni - tæki og tól

Hagnýtt efni - tæki og tól

Þróuð hafa verið ýmis verkfæri sem styðjast má við til samþættingar kynja- og jafnréttissjónarmiða við mótun stefnu og aðgerða.

Skýrslur

Skýrslur og greiningar

Í tengslum við kynjaða fjárlagagerð hafa verið unnar ýmsar skýrslur og greiningar á áhrifum fjárlaga og stefnumótunar á jafnrétti kynjanna.

Tölfræði

Kynjuð tölfræði

Greitt aðgengi að tölfræðiupplýsingum er ein af lykilforsendum þess að hægt sé að leggja mat á áhrif ráðstafana í ríkisfjármálum á kynin.

Samstarf

Samstarfsaðilar

Innleiðing kynjaðrar fjárlagagerðar er unnin í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg, námsbraut í kynjafræði við HÍ, OECD og fleiri aðila.