Fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð
Unnið er samkvæmt fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 sem var samþykkt í ríkisstjórn 26. október 2018.
Meginmarkmiðið með áætluninni er að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið við mótun fjármálaáætlunar og frumvarps til fjárlaga. Lögð er áhersla á að vinna með þau kynjaáhrif sem þegar hefur verið varpað ljósi á og dýpka samhliða greiningar til þess að ná fram gleggri mynd af stöðu mála innan málefnasviða og málaflokka ríkisins. Til að vinna að meginmarkmiði áætlunarinnar er m.a. lögð áhersla á kyngreind tölfræðigögn, greiningu á málefnasviðum og málaflokkum, samstarf, kynningu og fræðslu. Verkefnisstjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð fylgir áætluninni eftir undir forystu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Eldri áætlanir
Árið 2015 var samþykkt innleiðingaráætlun kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar 2015-2019. Í áætluninni var lögð áhersla á að auka þekkingu á kynjaáhrifum fjárlaga og skapa grundvöll til að endurmeta stefnumið við öflun og ráðstöfun opinbers fjár með verkefnavinnu ráðuneyta og auknu framboði og miðlun kyngreindra gagna. Jafnframt að gera jafnréttismat að hluta af ákvörðunartökuferlinu með áherslu á jafnréttismat frumvarpa og fjárlagatillagna.
Í apríl árið 2011 samþykkti ríkisstjórnin þriggja ára áætlun verkefnisstjórnar um áframhaldandi innleiðingu. Í áætluninni var kveðið á um fjölmargar leiðir til að festa kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð í sessi. Í kjölfarið unnu öll ráðuneyti með einn meginmálaflokk samkvæmt aðferðum kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar og tók sú vinna þrjú ár. Árlega voru birtar skýrslur um framvindu verkefnanna og niðurstöður þeirra voru kynntar í fjárlagafrumvarpinu 2015. Sjá áfangaskýrslur og lokaskýrslur verkefnanna.
Kynjuð fjárlagagerð