01. sep. 2026Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1383/2026. Úrskurður frá 1. september 2026
Deilt var um afgreiðslu embættis landlæknis á beiðni kæranda um gögn um raunfærnimat sjúkraliða, svo sem umsagnir, minnisblöð og skýrslur, og yfirlit úr málaskrá um málið. Landlæknir kvað leit í málaskrá embættisins ekki hafa leitt í ljós gögn sem féllu undir beiðnina og vísaði beiðni um málaskráryfirlit frá vegna umfangs hennar, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa að gögn sem féllu undir beiðnina lægju ekki fyrir hjá embættinu og taldi, þar sem leit hefði ekki leitt í ljós nein mál sem vörðuðu raunfærnimat sjúkraliða, að ekki hefði verið unnt að afhenda kæranda lista yfir slík mál. Ákvörðun landlæknis var því staðfest.