Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19
Breytingar á staðgreiðslu um áramót
Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.