Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Kynjuð fjárlagagerð
Kynjuð tölfræði
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Kynjuð tölfræði
Greitt aðgengi að tölfræðiupplýsingum sem eru sundurgreindar eftir kyni er ein af lykilforsendum þess að hægt sé að leggja mat á áhrif ráðstafana í ríkisfjármálum á kynin eða að öðru leyti samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið við ákvarðanatöku. Með þetta í huga er í lögum nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna kveðið á um að opinberir aðilar skuli leitast við að greina á milli kynja við alla tölfræðivinnslu nema sérstakar ástæður, svo sem persónuverndarhagsmunir, mæli gegn því