Styrkir á málefnasviði ráðuneytisins
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á haustin. Ráðherra veitir þá síðan á nýju ári, að undangenginni tillögu úthlutunarnefndar.
Með breyttum úthlutunarreglum um ofangreinda styrki á málefnasviði félags- og húsnæðismálaráðuneytis til félagasamtaka er nú hægt að sækja um tvenns konar styrki:
1) Verkefnastyrkir. Verkefnastyrkir eru veittir til afmarkaðra verkefna og alla jafna ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Í þeim tilvikum þar sem verktími er lengur en eitt ár er heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni. Ekki eru veittir styrkir til sömu verkefna og hljóta styrk á fjárlögum eða verkefna sem falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga við það.
2) Rekstrarstyrkir. Styrkir eru veittir til reksturs félagasamtaka sem hafa verið starfandi í að lágmarki þrjú ár. Rekstrarstyrkir geta verið veittir til tveggja ára í senn.
Sótt er um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.
Ath. undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið heyrir einnig þróunarsjóður innflytjendamála sem sömuleiðis veitir styrki.
Yfirlit yfir styrkþega
Frétt um styrkþega 2025Frétt um styrkþega 2024Frétt um styrkþega 2023Frétt um styrkþega 2022Frétt um styrkþega 2021Frétt um styrkþega 2020Frétt um styrkþega 2019Félags- og fjölskyldumál