Málefni barna
Fjallað er um réttindi barna, vernd þeirra og velferð í ýmsum lögum, enda eru þau viðkvæmur hópur sem mikilvægt er að huga að sérstaklega. Árið 2013 var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, Barnasáttmálinn, lögfestur hér á landi, sbr. lög nr. 19/2013.
Barnasáttmálinn hefur að geyma ýmis grundvallarréttindi og tryggir öllum börnum að 18 ára aldri sérstaka vernd og umönnun. Þar er einnig lögð áhersla á að öll börn eigi rétt á því að vera fullgildir þátttakendur í samfélaginu og að á þau sé hlustað, þótt þau njóti ekki allra sömu réttinda og fullorðnir. Meðal verkefna sem hér er fjallað um má nefna barnavernd, barnarétt, barnabætur, ættleiðingar, fæðingar- og foreldraorlof, brottnám barna o.fl.
Sjá einnig:
Yfirlit um lög
Yfirlit um lög um málefni barna er að finna á vef Alþingis
Yfirlit um reglugerðir
Yfirlit um reglugerðir um málefni barna er að finna á reglugerd.is
Stofnanir
BarnaverndarstofaUmboðsmaður barnaGreiningar- og ráðgjafarstöð ríkisinsÞjóðskrá ÍslandsSýslumennÞjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklingaSamskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertraHeyrnar- og talmeinastöð ÍslandsUnnt er að skjóta tilteknum ákvörðunum barnaverndarnefnda, Barnaverndarstofu, heimilis eða stofnunar til úrskurðarnefndar barnaverndarmála.
Málefni barna