Mat á áhrifum á börn

Hér má finna leiðarvísi og eyðublað um mat á áhrifum á börn, auk handbókar um samráð við börn. Efnið er ætlað starfsfólki stjórnarráðsins við undirbúning lagafrumvarpa, reglugerða, stefna og annarra ákvarðana sem geta haft áhrif á börn.

Mat á áhrifum á börn er hagsmunamat þar sem lagt er mat á hvaða áhrif ákvarðanir stjórnvalda geta haft á börn og réttindi þeirra. Markmiðið er að tryggja að stjórnvöld hugi með skipulegum hætti að stöðu barna við undirbúning ákvarðana og meti hvort, og þá með hvaða hætti, bregðast þurfi við þeim áhrifum sem ákvörðun kann að hafa.

Matið er liður í innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, barnasáttmálans. Í því felst að hagsmunir barna og réttindi þeirra séu metin sem hluti af undirbúningi lagafrumvarpa, stefnumótandi ákvarðana og ákvarðana sem varða réttindi einstakra barna.

Leiðarvísirinn og eyðublaðið voru unnin í samvinnu við umboðsmann barna. Áhersla var lögð á að efnið væri aðgengilegt, skýrt og einfalt í notkun. Þegar lagafrumvörp, reglugerðir, stefnur eða aðrar stefnumótandi ákvarðanir geta haft áhrif á börn skal leggja mat á áhrif þeirra á börn og réttindi þeirra.

Samráð við börn getur verið mikilvægur þáttur í mati á áhrifum á börn. Því hefur einnig verið unnin handbók um samráð við börn. Í handbókinni er fjallað um leiðir sem stjórnvöld geta nýtt til að eiga samráð við börn og þau atriði sem starfsfólk þarf að hafa í huga þegar börnum er boðið að taka þátt í opinberri stefnumótun og ákvarðanatöku.

Ungur temur, gamall nemur - Handbók um samráð við börnMat á áhrifum á börn - Leiðarvísir og eyðublað