16 nóvember 2025
/
Ávarp á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa (2025)
Ávarp á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa - 16. nóvember 2025
Forseti Íslands, aðstandendur og aðrir góðir gestir.
Í dag – sunnudaginn 16. nóvember, alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa – minnumst við þeirra sem hafa látið lífið í umferðinni eða slasast alvarlega.
Ég votta öllum aðstandendum sem eiga um sárt að binda vegna umferðarslysa mína dýpstu samúð. Þessi stund er sár áminning um hversu dýrmætt lífið er – og hversu miskunnarlaust það getur verið.
Minningardagurinn er nú haldinn í fimmtánda sinn hér á landi og eru minningarathafnir haldnar víða um land.
Ef við horfum áratugi aftur í tímann hefur orðið bylting í umferðaröryggi. Hér á landi – þrátt fyrir gríðarlega aukinn umferðarþunga og fjölgun ferðamanna, erum við á réttri leið.
Öflugt kynningarstarf Samgöngustofu og fleiri aðila undanfarin ár hefur skilað miklu við að fækka slysum.
Þar bætist við gríðarlega mikilvægt starf Vegagerðarinnar, en starfsfólk hennar leggur sig fram við hönnun, viðhald og rekstur vegakerfisins til að gera umferðina eins örugga og greiða og kostur er.
En árangurinn er ekki alltaf línulegur. Síðasta ár sýnir okkur glöggt að við megum hvergi slaka á.
Sem ráðherra innviða- og samgöngumála er það skylda mín að halda vel utan um málaflokkinn og ég hef óbilandi vilja til að halda okkur á réttri braut.
Þema minningardagsins í ár er sérstaklega mikilvægt. Í ár beinum við sjónum okkar að einu grundvallaröryggistæki. Þetta er tæki sem við öll þekkjum og ættum að nota án umhugsunar: Bílbeltin.
Ný umferðarkönnun sem Samgöngustofa gerði á þessu ári, 2025, leiðir í ljós áhyggjuefni. Hún sýnir okkur að í ákveðnum hópum hefur dregið úr bílbeltanotkun. Þetta er sérstaklega áberandi meðal ungra karlmanna.
Þessi könnun ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá okkur öllum sem hér erum samankomin – stjórnvöldum, Samgöngustofu, Vegagerðinni, lögreglu og öðrum viðbragðsaðilum.
Vísindin eru skýr. Sá sem notar ekki bílbelti er um það bil þrettán sinnum líklegri til að láta lífið en sá sem notar bílbelti.
Á síðustu 20 árum hafa 195 manns látist í bifreiðum á Íslandi. Upplýsingar um beltanotkun lá fyrir hjá 170 þeirra. Af þeim var 41% ekki í beltum. Við þurfum nýtt átak í þessum málum. Betur má ef duga skal.
Við þurfum einnig að horfast í augu við aðrar áskoranir. Símanotkun við stýri, of hraður akstur, þreyta við akstur og akstur undir áhrifum eru allt þættir sem við þurfum áfram að sporna gegn.
Við höfum séð það þegar samfélagið sameinast um viðhorfsbreytingu, þegar lög og eftirlit styðja við breytta hegðun, og þegar innviðirnir eru öruggari og fræðslan skýr, þá breytist hegðun í umferðinni. Okkur hefur tekist það áður og okkur mun takast það aftur.
Verkefni mitt sem ráðherra er skýrt: Að vinna áfram að því að tryggja umferðaröryggi. Og stjórnvöld hafa sýnt vilja sinn í verki. Ríkisstjórnin hefur því samþykkt verulega aukningu fjármagns í viðhald vega. Einnig til innviðauppbyggingar í gegnum innviðafélag, sem vonandi verður að veruleika á næsta ári. Við erum að tala um tugmilljarða aukningu á samgönguáætlun til næstu ára. Þar er öryggi lykilatriði.
Við þetta tækifæri vil ég sérstaklega þakka aðstandendum fólks sem hefur slasast alvarlega eða látist í umferðinni fyrir að vera hér í dag.
Ég er þakklátur öllum okkar framúrskarandi viðbragðsaðilum: lögreglu, starfsfólki Neyðarlínunnar, sjúkraflutningamönnum, slökkviliðsmönnum, björgunarsveitum og þyrlusveitum – fyrir sitt framlag.
Jafn ómetanlegt er framlag framúrskarandi heilbrigðisstarfsfólks á bráðamóttökum og sjúkrahúsum; þið takið á móti okkur þegar neyðin er mest.
Ég vil einnig færa ÖBÍ réttindasamtökum þakkir fyrir sína ómetanlegu baráttu. Þau berjast fyrir bættu aðgengi og réttindum þeirra sem hafa misst hreyfigetu eða búa við fötlun, en afleiðingar umferðarslysa eru því miður allt of oft þess eðlis.
Fyrir ykkar óeigingjörnu störf, og fyrir hönd alls samfélagsins, þakka ég ykkur öllum innilega. Fyrir hönd stjórnvalda heiti ég því að við munum styðja ykkur með ráðum og dáð. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að fækka slysum og bjarga mannslífum.
Takk fyrir.