Stefnumótun
Löng hefð er fyrir stefnumótun og áætlanagerð í innviðaráðuneytinu og forverum þess. Ráðuneytið hefur unnið stefnupíramída fyrir starfsemina þar sem fram kemur hvernig hlutverk þess, gildi og framtíðarsýn tengist fagstefnum og áætlunum.
Hlutverk:
Líta eftir, upplýsa og leiða samfélagið til aukinna lífsgæða.
Gildi:
Ísland er í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tenging byggða og Íslands við umheiminn er í jafnvægi við umhverfið.
Framtíðarsýn:
Framsýni – Árangur – Traust
Meginmarkmið:
• Innviðir mæti þörfum samfélagsins.
• Sjálfbærar byggðir og sveitarfélög um land allt.
Markmið – Mælikvarðar – Aðgerðir: Stefnumið ráðherra, áætlanir ráðuneytisins og dagleg verkefni.
Stefnur og aðgerðaáætlanir fyrir málaflokka ráðuneytisins vinna saman að áherslum ráðherra, eru unnar eftir samræmdum vinnubrögðum og ráðherraskipuð ráð stýra vinnslu þeirra.
- Byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036
- Samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034
- Stefna og aðgerðaáætlun um málefni sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038
- Almenningsssamgangnastefna
- Flugstefna
- Yfirlit um allar stefnur og áætlanir Stjórnarráðsins
- Verkfæri stefnumótunar o.fl.
Skipulag
Ráðherra skipar samgönguráð, byggðamálaráð og starfshóp um stefnu í sveitarstjórnarmálum. Ráðin leggja fram tillögu að 15 ára stefnu og fimm ára aðgerðaáætlun fyrir hvern málaflokk með forgangsröðun, að fengnum áherslum ráðherra. Endurskoðun fer fram á allt það þriggja ára fresti.
Með hverju ráði starfar verkefnisstjóri og í stefnumótunarhópi ráðuneytisins vinna þeir enn fremur að samhæfingu stefna og áætlana. Unnið er eftir samræmdu skipulagi og með verkfærum Stjórnarráðsins í stefnumótun.
Árangur og sýnileiki
Í aðgerðaáætlunum stefnanna er að finna markmið og mælikvarða sem marka framganginn. Ár hvert er staða þeirra birt í ársskýrslu ráðherra, sbr. lög um opinber fjármál, nr. 125/2015.
Samhæfing
Unnið er að samhæfingu stefna og áætlana ráðuneytisins sem byrjar með sameiginlegri framtíðarsýn og sameiginlegum meginmarkmiðum allra málaflokka. Málefnin mynda eina heild þar sem starfsemi í einum málaflokki hefur áhrif á hina. Fátt hefur til að mynda meiri áhrif á þróun byggðar en samgöngur og samgöngubætur hafa áhrif á sameiningu sveitarfélaga.
- Kynningarrit um samhæfingu áætlana ráðuneytisins (útg. mars 2020)
Innviðaráðuneytið