24 júní 2026
/
Ávarp við opnun nýs vegarkafla og nýrra brúa á Hringvegi um Hornafjörð
Ræða flutt af Ragnari Þór Ingólfssyni, starfandi innviðaráðherra, við opnun á nýjum Hringvegi og fjórum nýjum tvíbreiðum brúm um Hornafjörð 24. júní
Þingmenn, sveitarstjórnarfólk, vegamálastjóri og aðrir góðir gestir
Það er ekki á hverjum degi sem við opnum nýja hluta Hringvegarins, og það er einstaklega ánægjulegt að vera hérna með ykkur í dag. En í dag er slíkur dagur.
Við erum hér til opna nýjan kafla í samgöngusögu Skáftárhrepps og Hornafjarðar. Til að vígja nýja, betri og öruggari tengingu milli Suðurlands og Austurlands.
Með þessari framkvæmd er Hringvegurinn styttur um 12 kílómetra og leiðin til Hafnar úr vestri stytt um nærri 15 kílómetra. Það munar um minna.
Ferðatími styttist, umferðaröryggi eykst til muna og við sköpum betri tengingar milli staða, milli fólks og á milli tækifæra.
Suðausturhorn landsins hefur lengi búið við takmarkanir sem fylgja löngum leiðum, einbreiðum brúm og erfiðum aðstæðum, ekki síst yfir vetrarmánuðina.
Með nýjum vegi og fjórum tvíbreiðum brúm – yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Hoffellsá og Bergá – er stigið stórt skref í átt að auknu umferðaröryggi. Við erum að fækka hættulegum stöðum á leiðinni, jafna aðstæður og gera ferðalög öruggari fyrir alla.
Þessi framkvæmd er lyftistöng fyrir allt samfélagið, Hornfirðinga, Suðursveitunga, Skaftfellinga og þótt víðar væri leitað.
Hún styrkir tengingar milli þéttbýlisstaða á svæðinu, gerir þjónustu aðgengilegri og opnar nýja möguleika fyrir atvinnulífið. Fyrirtæki geta unnið á stærra svæði, fólk getur sótt vinnu og þjónustu með auðveldari hætti og ný tækifæri skapast fyrir ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar.
Framkvæmdin á sér langan aðdraganda. Fyrstu hugmyndir voru lagðar fram fyrir rúmum tveimur áratugum. Frá þeim tíma hefur margt breyst en viljinn til að bæta samgöngur um Hornafjörð hefur staðið óbreyttur.
Stærstur hluti þeirra framkvæmda sem við nú tökum í gagnið fór í útboð árið 2022 og þá þegar um haustið hófust framkvæmdir.
Í dag sjáum við árangurinn.
Verkið sjálft var umfangsmikið: nær 19 kílómetrar af nýjum þjóðvegi, hátt í 9 kílómetrar af tengi- og hliðarvegum, fjórar brýr sem samtals eru nærri hálfur kílómetri á lengd, nýtt hringtorg ásamt áningarstað fyrir vegfarendur. Þetta er mannvirki sem mun þjóna landsmönnum um áratugi.
Kæru gestir
Þegar við horfum hér yfir og erum um það bil að taka þessa nýju leið í notkun er mikilvægt að hafa hugfast að hér er um að ræða meira en bara röð malbiks og steypu. Það sem við vígjum hér í dag er jafnframt tákn um framfarir, samstöðu og framtíðarsýn. Þetta er dæmi um það sem við getum gert þegar við vinnum saman, ríkisvaldið, sveitarfélög, verktakar og samfélagið allt.
Í dag fögnum við áfanga sem hefur lengi verið beðið eftir. En við lítum líka fram á veginn. Verkefnin eru mörg, þörfin er mikil en nú höfum við ný verkfæri til að takast á við þau. Alþingi samþykkti nýverið samgönguáætlun þar sem áform eru uppi um umfangsmiklar samgöngubætur víðsvegar um land. Ríkisstjórnin er staðráðin í því að fjárfesta í innviðum landsins, í vegakerfinu, með það að markmiði að efla öryggi fólks og atvinnutækifæri.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu að þessu verkefni: skipulagsyfirvöldum og starfsfólki sveitarfélaga svæðisins, verkfræðingum, verktökum, starfsfólki Vegagerðarinnar og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum í gegnum árin.
Án ykkar værum við ekki að vígja þessa glæsilegu brú.
Og ekki síst vil ég þakka ykkur íbúum svæðisins, fyrir þolinmæði, stuðning og trú á verkefnið.
Með þessum orðum lýsi ég nýjan Hringveg um Hornafjörð formlega opinn.
Takk fyrir.