20 október 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Þjóðin í aðalhlutverki í nýrri Óperu

Stofnun Óperu innan Þjóðleikhússins markar tímamót í íslensku menningarlífi. Með henni er lagður traustur grunnur að öflugri óperustarfsemi til framtíðar með skýrri lagaumgjörð, auknum stöðugleika og betri starfsskilyrðum listafólks. Um leið skapast ný tækifæri til listrænnar þróunar, samstarfs og betri nýtingar þeirra innviða sem þegar eru til staðar.

Áratugir af hugsjón og elju

Saga óperulistar á Íslandi er ekki löng í alþjóðlegu samhengi, en hún er rík af hugsjónastarfi og listrænum metnaði. Talið er að fyrsta óperan hafi verið sett upp í Iðnó árið 1937, gamanóperan Systirin frá Prag eftir Wenzel Müller. Eftir opnun Þjóðleikhússins árið 1950 varð það helsti vettvangur óperuflutnings hér á landi og árið 1951 var Rigoletto eftir Giuseppe Verdi sett þar á svið.

Straumhvörf urðu með stofnun Íslensku óperunnar árið 1980, undir forystu Garðars Cortes og fleiri listamanna. Fyrsta sýning hennar í Gamla bíói var Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss árið 1982. Sú sýning markaði upphaf að áratugalangri starfsemi sem átti eftir að skipta sköpum fyrir íslenskt menningarlíf, allt þar til undirbúningur að stofnun þjóðaróperu hófst.

Sú ópera sem nú lítur dagsins ljós sprettur því ekki úr  tómarúmi heldur byggir á starfi þeirra sem á undan gengu og á  þrotlausri vinnu listafólks sem með hugsjón og ástríðu lögðu grunninn að öflugri óperustarfsemi á Íslandi um áratugalangt skeið. Þessum frumkvöðlum og öllum þeim sem hafa haldið merki óperunnar á lofti í gegnum árin ber að þakka fyrir ómetanlegt framlag þeirra.

Fimm svið – ein Ópera

Í óperu sameinast margar listgreinar í margslungnu og heillandi listformi. Eitt af meginhlutverkum hinnar nýju Óperu er að efla frumsköpun, nýsköpun og listræna þróun, samhliða því að vekja áhuga nýrra áhorfenda og gera óperulistina aðgengilega sem flestum. Það er því sérstaklega ánægjulegt að hin nýja Óperu hafi látið fyrst að sér kveða í Hofi á Akureyri síðastliðið laugardagskvöld, með metnaðarfullu verki sem verður í framhaldinu flutt á Eskifirði, í Skálholti og í Reykjanesbæ og að lokum í Þjóðleikhúsinu.

Aðgengi að listum og menningu, óháð búsetu, er ein af megináherslum stjórnvalda. Með samstarfi við listafólk og menningarstofnanir um land allt, meðal annars sinfóníuhljómsveitir, kóra og einsöngvara, skapast tækifæri til að efla bæði óperulistina og menningarlíf í heimabyggð.

Þarna birtist einmitt sú framtíðarsýn sem býr að baki Óperunni. Hún á ekki að einskorðast við eina byggingu eða einn landshluta. Hún á að vera lifandi og skapandi afl sem nær til fólks um allt land. Hún verður sannkölluð þjóðarópera – ópera sem tilheyrir allri þjóðinni og sem landsmenn um allt land geta notið.

Ég óska landsmönnum öllum til hamingju með Óperuna okkar. Megi hún blómstra, vaxa og dafna og auðga íslenskt menningarlíf um ókomna tíð.

Höfundur er menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.