Skipulag
Skrifstofa fjármála og rekstrar
Skrifstofan ber ábyrgð á vinnu við gerð fjárlaga og fjármálaáætlunar og er leiðandi í teymi ráðuneytisins um opinber fjármál. Hún hefur eftirlit með framkvæmd fjárlaga og umsjón með fjárheimildum á málefnasviðum ráðuneytisins, þar á meðal samningum. Skrifstofan tryggir lögbundið eftirlit með fjárreiðum, rekstri og uppgjöri ríkisaðila og heldur utan um verkefni tengd framkvæmda- og húsnæðismálum stofnana ráðuneytisins. Jafnframt annast hún lögbundið eftirlit með stofnunum og aðilum sem fá styrki eða framlög frá ráðuneytinu.
Skrifstofan ber ábyrgð á almennum rekstri ráðuneytisins, áætlanagerð, gerð samninga og innkaupum. Þá ber skrifstofan ábyrgð á skjalamálum og málaskrá ráðuneytisins, auk þess að annast áhrifa- og kostnaðarmat lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla í samvinnu við fagskrifstofur. Skrifstofan leiðir samskipti við Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir, Fjársýsluna og Umbru.
Fagskrifstofur
Fagskrifstofur ráðuneytisins eru þrjár: skrifstofa háskóla og vísinda, skrifstofa menningar og skapandi greina og skrifstofa nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála.
Skrifstofurnar fara með stefnumótunar- og framkvæmdarhlutverk fyrir málefnasvið sín með stuðningi skrifstofu ráðuneytisstjóra. Þær fara með stjórnsýsluhlutverk síns málaflokks, hafa samstarf og samráð við hagaðila og sinna samskiptum vegna stofnana og sjóða sem undir málefnasvið þeirra heyra. Skrifstofurnar tryggja jafnframt lögbundið eftirlit með ríkisaðilum og öðrum sem starfa að stjórnarframkvæmd á málefnasviðum skrifstofanna.
Skrifstofurnar vinna í umboði ráðherra að stefnumarkandi langtímaverkefnum; svo sem mótun og innleiðingu á stefnum stjórnvalda í tengslum við málefnasvið sín, fjárlögum og fjármálaáætlun, lagafrumvörpum, reglugerðum og aðgerðaáætlunum sem heyra undir málefnasvið skrifstofanna.
Skrifstofurnar fara með alþjóðasamskipti og sinna alþjóðlegri hagsmunagæslu í málaflokkum þeirra fyrir Íslands hönd. Skrifstofurnar undirbúa jafnframt skipanir og tilnefningar í nefndir og ráð, jafnt innanlands sem og í alþjóðlegu samstarfi.
Skrifstofa ráðuneytisstjóra
Skrifstofunni er stýrt af ráðuneytisstjóra sem tilnefnir einn skrifstofustjóra ráðuneytisins sem staðgengil sinn. Skrifstofa ráðuneytisstjóra ber ábyrgð á verklagi ráðuneytisins, forgangsröðun og að starfsáætlun sé gefin út og fylgt eftir. Að auki annast hún gæðamál, innleiðingu á ferlum og gæðahandbók. Þá tryggir skrifstofan að stjórnsýsla ráðuneytisins sé vönduð.
Skrifstofan hefur yfirsýn yfir stefnumótunarvinnu innan ráðuneytisins og eftirfylgni hennar, hefur yfirsýn yfir áætlanagerð og hefur frumkvæðishlutverk í umbótamálum, samræmingu stjórnsýslu, starfsemi og samvinnu. Skrifstofan tryggir að stefnumótun sé framkvæmd á áhrifaríkan hátt með því að veita stuðning og sérfræðiþekkingu um stefnumótunarferli til fagskrifstofa. Starfsfólk skrifstofunnar styður við innra starf ráðuneytisins, m.a. við störf hópa og teyma sem starfa þvert á ráðuneytið.
Skrifstofan fer jafnframt með mál er varða alla aðstoð og þjónustu við ráðherra; s.s. dagskrá ráðherra, skipulag viðtala, heimsóknir og ferðir, undirbúningur funda og mál sem varða þingstörf ráðherra. Skrifstofan sinnir öllum tilfallandi verkefnum sem henni eru falin af ráðherra innan þeirra marka sem lög og reglur kveða á um.
Skrifstofan hefur umsjón með upplýsingamiðlun, fjölmiðlasamskiptum og útgáfumálum ráðuneytisins.
Skrifstofan fer með mannauðsmál innan ráðuneytisins sem og forstöðumanna stofnana ráðuneytisins. Skrifstofan ber ábyrgð á launasetningu, jafnlaunakerfi og aðbúnaði starfsfólks ráðuneytisins. Að auki fer skrifstofan með jafnréttismál, fræðslu og starfsþróun starfsfólks.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið