Sóttvarnaráð

Sóttvarnaráð er skipað skv. 6. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, til fjögurra ára í senn. Þar skulu eiga sæti sérfræðingar á sviði smitsjúkdómalækninga, bakteríufræði, veirufræði, kynsjúkdóma og faraldsfræði/heilbrigðisfræði, heilsugæslulæknir og hjúkrunarfræðingur með sérþekkingu á sviði sóttvarna. Ráðið mótar stefnu í sóttvörnum og skal vera heilbrigðisyfirvöldum til ráðgjafar um aðgerðir til varnar útbreiðslu smitsjúkdóma.

Aðalmenn

  • Ólafur Guðlaugsson, sérfræðingur á sviði smitsjúkdóma, formaður
  • Karl G. Kristinsson, sérfræðingur á sviði bakteríufræði, varaformaður
  • Brynja Ármannsdóttir, sérfræðingur á sviði veirufræði
  • Elísabet R. Jóhannesdóttir, sérfræðingur á sviði húð- og kynsjúdóma
  • Gunnar Tómasson, sérfræðingur á sviði faraldsfræði/heilbrigðisfræði
  • Nanna S. Kristinsdóttir, heilsugæslulæknir
  • Ingunn Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur með sérþekkingu á sviði sóttvarna.

Varamenn

  • Agnar Bjarnason, sérfræðingur á sviði smitsjúkdóma
  • Guðrún Svanborg Hauksdóttir, sérfræðingur á sviði bakteríufræði
  • Guðrún Erna Baldvinsdóttir, sérfræðingur á sviði veirufræði
  • Erna Milunka Kojic, sérfræðingur á sviði kynsjúdóma
  • Valtýr Thors, sérfræðingur á sviði faraldsfræði/heilbrigðisfræði
  • Ásmundur Jónasson, heilsugæslulæknir
  • Sigrún Rósa Steindórsdóttir, hjúkrunarfæðingur með sérþekkingu á sviði sóttvarna

Skipun ráðsins er frá 4. júní 2025 til 3. júní 2029.