Um fyrirkomulag prófs í verðbréfaviðskiptum

Fyrirkomulagið breyttist 1. október 2020

I. Prófið skiptist í tvö hluta: lögfræði og viðskiptafræði.

Í lögfræðihlutanum reynir á eftirfarandi greinar:

  1. lög og reglur á fjármálamarkaði,
  2. almenn siðfræði og tengd löggjöf á fjármálamarkaði,
  3. aðrar greinar á sviði lögfræði að því marki sem þær skipta máli við umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga:

a. félagaréttur,
b. samninga- og kröfuréttur,
c. gjaldþrotaskipti og sambærileg málsmeðferð,og
d. skaðabótaábyrgð vegna fjárfestingarráðgjafar.

Í viðskiptafræðihlutanum reynir á eftirfarandi greinar:

  1. verðbréf, afleiður og gjaldeyrir,
  2. fjárfestingarferli,
  3. viðskiptahættir,
  4. aðrar greinar á sviði viðskiptafræði að því marki sem þær skipta máli við umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti og þjónustu með fjármálagerninga og fjárfestingarráðgjöf:

a. skattaleg atriði, og
b. þjóðhagfræði.

II. Prófin verða haldin á tímabilinu mars til júní 2021, þ.m.t. sjúkrapróf, að því gefnu að  tilskilinn fjöldi þátttakenda hefur skráð sig í próf (a.m.k. 10 manns).

III. Ekki verða veittar undanþágur frá einstaka prófhlutum. En þeir sem lokið hafa prófi eða öðlast réttindi á Evrópska efnahagssvæðinu sem krafist er í viðkomandi ríki til að vera heimilt að hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga eiga rétt á, ef þeir óska eftir því við prófnefnd, að fá útgefið skírteini um próf í verðbréfaviðskiptum, sbr. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og 2. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.

Drög að nýrri reglugerð og prófefnislýsingu sem gilda munu frá 1. október 2020.