Microsoft samningur 2026
Breytingar á innheimtufyrirkomulagi vegna Microsoft leyfa frá og með 1.1.2026
Núverandi fyrirkomulag innheimtu hugbúnaðarleyfa Microsoft byggir á því að 2/3 hlutar leyfakostnaðar er innheimtur miðlægt í gegnum lækkaðar fjárheimildir til stofnana. Sú upphæð sem dregin var af fjárheimildum (innheimt miðlægt) stofnana frá og með 2022 miðaðist við umfang samningsins frá 2021. Þannig var fjöldi leyfa stofnana 2021 notaður sem viðmið við áætlaðan kostnað 2022 og 2/3 hluti þess kostnaðar dreginn af fjárheimildum frá og með 2022. Þessi hluti innheimtunnar hefur verið fastur og því ekki í takti við aukningu á notkun samningsins, sjá töflu.
Þetta hefur falið í sér að hlutdeild stofnana í greiðslu fyrir leyfi hefur verið talsvert lægra en gert var ráð fyrir. Jafnframt gerir núverandi innheimtufyrirkomulag leyfakostnað ógagnsærri en ef innheimt er með 100% fyrirkomulagi, líkt og Ríkisendurskoðun hefur bent á.
Frá og með næsta rekstrarári verður því fjárheimildum sem dregnar voru af stofnunum 2022 skilað til stofnana en í staðinn innheimt að fullu skv. notkun stofnana. Þetta mun þýða að ef stofnun kaupir t.d. 10 leyfi, greiðir hún fyrir 10 leyfi skv. reikningi og án miðlægrar aðkomu. Núverandi innheimtufyrirkomulag mun því heyra sögunni til frá og með janúar 2026.
Núverandi fimm ára samningur við Microsoft rennur út 31.3.2026
Samtal er hafið við Microsoft vegna nýs samnings með aðstoð sérfræðinga frá ráðgjafafyrirtækinu Onyx. Rekstraraðilar skýjageira verða kallaðir til í samtalið framundan við Microsoft.
Útkoma þess samtals liggur ekki fyrir á þessum tímapunkti en ekki er óvarlegt að búast við hækkun á leyfagjöldum frá Microsoft miðað við þróun á heimsvísu. Að auki hefur verð fyrir leyfi verið óbreytt í fimm ár skv. samningi íslenska ríkisins við Microsoft.
Nánari upplýsingar verða sendar út innan skamms til ríkisaðila.
Spurningum má beina til [email protected]
Aðrir þættir sem kunna að skipta máli fyrir ríkisaðila vegna samnings ríkisins við Microsoft
Fulltrúar Microsoft til Íslands haustið 2025
Fulltrúar Microsoft, sem sinna opinbera geiranum, munu mæta til Íslands og ræða ma. öryggismál og gagnatengd mál (e. data and digital sovereignty) auk annarra málefna sem tengjast lausnum Microsoft. Fulltrúum ráðuneyta, rekstraraðila skýjageira og þeirra sem fara með öryggismál verður boðið að sækja fundina.
Innleiðing þriðja áfanga Umbru – gagna- og öryggislausnir
Við hvetjum stofnanir sem eru í rekstri hjá Umbru að huga að innleiðingu á 3. áfanga skýjavegferðar sem innifelur öflugar öryggislausnir, sem nýta enn betur möguleika Microsoft leyfanna og undirbýr jarðveginn fyrir gagnaflokkun ríkisins, en hún er einmitt forsenda fyrir innleiðingu á Copilot gervigreindinni.
Innifalið í áfanganum eru miðlægar stillingar eldveggja og veiruvarna ásamt öryggisvöktun og undirskriftalausn fyrir tölvupóst. Innleiðing þessara lausna hefur sýnt að þær geti komið í stað sambærilegrar þjónustu og þar með lækkað rekstrarkostnað. Stofnanir geta haft samband við Umbru til að hefja þá innleiðingu.
Eigin skýjageirar krefjast samþykkis fagráðuneytis
Vorið 2025 var kynntur til sögunnar aukinn sveigjanleiki fyrir stofnanir sem sýna því áhuga að reka eigin skýjageira. Í því samhengi ber að skoða mikilvæga þætti:
Skilyrði
- Samþykki fagráðuneytis þarf fyrir rekstri eigin skýjageira. Ráðuneytis- og rekstrarstjórar ráðuneyta hafa fengið tilkynningu þess efnis.
- Stofnanir þurfa að sýna fram á að kostnaður í eigin rekstri sé hagstæðari en í samrekstri, sjá gátlista.
- Tryggja þarf að farið verði eftir fyrirliggjandi hönnun og ákvörðunum arkitektúrráðs um öryggi skýjageira.
- Stofnunum er ekki heimilt að kaupa leyfi af þriðja aðila. Það er gert til að
- oviðhalda samningsstöðu ríkisins gagnvart Microsoft um verð á leyfum, og
- samræma öryggisstig þvert á ríkiskerfið
Til umhugsunar vegna reksturs eigin skýjageira
- Uppsetning og virkjun eiginleika M365 leyfa (E5) er umfangsmikil, ekki síst öryggislausnanna sem eru innifaldar í E5.
- Rekstur eigin skýjageira er kostnaðarsamur þegar allt er til tekið, s.s. fastur kostnaður í formi launa tæknifólks og notendaþjónustu auk ytri ráðgjafar / aðstoðar frá þriðja aðila eftir atvikum.
- Eigin skýjageiri takmarkar upp að vissu marki flæði gagna milli stofnana sem eru ekki í sama skýjageira.
- Hætta er á tvöföldun á leyfakostnaði ef starfsfólk vinnur hjá fleiri en einni stofnun þar sem Microsoft leyfir ekki samnýtingu leyfa á milli skýjageira.
- Almenn viðmið um stærð skýjageira í eigin rekstri eru að lágmarki 250 starfsmenn.
Reglulegir fundir rekstraraðila og þjónustueigenda (stofnana) eru haldnir
Rekstrarfyrirkomulag í kringum Microsoft 365 er á ábyrgð rekstraraðila skýjageiranna. Fulltrúar þeirra hittast reglulega undir hatti arkitektúrráðs. Hlutverk ráðsins er að móta og gefa út rekstrarlega staðla fyrir skýjageirana. Þá hittast fulltrúar stofnana líka reglulega undir hatti þjónustueigendaráðs. Þar eru þarfir stofnana ræddar og þeim komið í kjölfarið á framfæri við arkitektúrráðið.
Nánari upplýsingar:
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins