Sögulegt yfirlit

Íslendingar fengu forræði utanríkismála sinna 1918. Málaflokkurinn heyrði í upphafi undir forsætisráðherra sem þá var Jón Magnússon. Frá árinu 1929 er starfrækt sérstök utanríkismáladeild við forsætisráðuneytið. Árið 1940 tóku Íslendingar alfarið meðferð utanríkismála í sínar hendur og utanríkismáladeildinni breytt í ráðuneyti. Lög voru sett um utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúa þess erlendis strax á árinu 1941. Ný lög um utanríkisþjónustu Íslands voru sett árið 1971.