Stjórnmálin á tímum heimastjórnarinnar
Þýðing þingræðisins
Átakamál
Nokkur stórmál settu svip á stjórnmálaumræðu og stjórnmálaátök heimastjórnartímans. Sum voru hrein átakamál stjórnar og stjórnarandstöðu þar sem stjórnarmeirihlutinn hlaut á endanum að ráða. Af slíkum deilum stóð hin fyrsta og ákafasta um símamálið 1906.Sumar illvígustu deilurnar klufu stjórnmálaflokka og felldu jafnvel ráðherra. Svo var um *„bankafarganið“*1909 og *„fyrirvarann“*1914. Þrálátustu átökin voru þó um *sambandsmálið,*þ.e. hvernig ætti að ná fram niðurstöðu um samband Íslands og Danmerkur sem færði Íslendingum fyllri og formlegri sjálfstjórn en stöðulögin frá 1871. Þær deilur risu hæst um uppkastið1908 og *„bræðinginn“*1912. Lausn á sambandsmálinu fékkst með sambandslagasamningnum 1918, og var það vitanlega stórmál þess árs, en ráðið til lykta án stórátaka. Fánamálið1913 varð ekki átakamál milli stjórnmálafylkinga, en hins vegar eitt mesta hitamál tímabilsins gagnvart almenningsáliti.
Símamálið
Um fá mál frá tíð heimastjórnar hefur ríkt jafn mikill misskilningur samtímans og símamálið. Þegar mikið liggur við, vitna menn gjarnan til reiðar bænda af Suðurlandi til Reykjavíkur til þess að mótmæla sæstrengnum sem dæmi um þröngsýni; baráttu gegn tækni og framþróun. Það er mikil einföldun. Símamálið var mikið deilumál þar sem tekist var á um sæstreng eða loftskeyti. Hannes Hafstein hélt fram sæstreng og bar málið fram til sigurs, Einar Benediktsson talaði fyrir loftskeytum.
Hannes Hafstein lét það verða eitt sitt fyrsta verk að hefja samninga um skeytasamband. Sjálfur ræddi hann við Marconi-félagið og fékk dönsku stjórnina til að reyna á ný samninga við Mikla norræna. Þegar báðir kostirnir lágu fyrir valdi Hannes danska samninginn, og kom þrennt til. Hann byggði á tækni sem öruggari reynsla var fengin af; honum fylgdi landsími frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, að vísu á vegum Íslendinga en með framkvæmdastyrk frá Mikla norræna; og þótt hærri árlegan rekstrarstyrk þyrfti til sæsíma en loftskeyta, þá myndi ríkissjóður Dana bera mest af þeim bagga. Síðan samdi Hannes við Norðmenn um framkvæmdir við landsímann.
Ákvörðun ráðherra var skiljanleg en ekki óumdeilanleg. Þótt ritsímatæknin væri þrautreynd, þá hafði hún sína galla, einkum þegar viðgerða var þörf á sæstreng, og kynnu loftskeyti jafnvel að reynast öruggari. Ef tilboð Marconi var ekki nógu gott, hefði ráðherra þá ekki átt að tala við fleiri loftskeytafyrirtæki? Og þótt loftskeytastöð risi í Reykjavík, hvað bannaði þá Íslendingum að leggja síma innanlands eftir eigin þörfum? Mesta andúð vakti þó símasamningurinn fyrir það að vera of tengdur dönskum hagsmunum og dönskum yfirráðum. Með honum var dönsku fyrirtæki fengin einokunaraðstaða á Íslandi, dönsku stjórninni falið ákvörðunarvald um gjaldskrá, Ísland keypt fyrir danskan ríkisstyrk til að binda sig við danskan samningsaðila.
Hér voru sem sagt tvær hliðar á málinu, stjórnin, þ.e. ráðherra, búin að binda sig við annan málstaðinn, og þá hlaut hinn að koma í hlut stjórnarandstöðunnar. Hún fékk nú tækifæri til að beita þjóðlegum rökum gegn því að gera Ísland háð einkarétti Dana, rétt eins og heimastjórnarmenn höfðu gert þegar hlutafélagsbankinn var á döfinni.
Blöð og áhrifamenn reyndust yfirleitt líta á símasamninginn eins og flokkslínur sögðu til um, en hjá almenningi fékk málstaður valtýinga góðan hljómgrunn. Það kom ekki síst fram á þingmálafundum, sem að gömlum sið voru haldnir í kjördæmum fyrir þing til að gefa þingmönnum í vegarnesti ályktanir kjósenda um helstu dagskrármál. Á þinginu 1905 reyndist samt enginn bilbugur á fylgi heimastjórnarmanna við ráðherra sinn í símamálinu. Breytti þar engu þótt Marconifélagið hefði sett upp bráðabirgðastöð í Reykjavík sem náð gat fréttaskeytum utan úr heimi.
Stjórnarandstaðan brá nú á það óvenjulega ráð að efna til fjöldamótmæla gegn símasamningnum og stefna til Reykjavíkur tryggum stuðningsmönnum úr nálægum héruðum, allt frá Borgarfirði til Suðurlandsundirlendis. Yfir 200 bændur tókust þessa ferð á hendur um hásláttinn, og við þá hafa aðgerðirnar verið kenndar. *Bændafundurinn,*sem kallaður var, samþykkti ályktun gegn sæsímanum sem Hannes Hafstein hafnaði, og var þá efnt til mótmæla á Austurvelli, en lögregla varnaði andófsmönnum inngöngu í þinghúsið. Samningarnir voru staðfestir af Alþingi og kostnaður tekinn á fjárlög. Aðeins 13 mánuðum síðar, í september 1906, var verkinu lokið, og skiptust konungur og ráðherra á skeytum milli höfuðborga Danmerkur og Íslands.
Hin óvenjulegu mótmæli gegn símanum voru lengi í minnum höfð og oft túlkuð, þegar frá leið, sem skammsýn andstaða gegn tækni og framförum og bændum lagt til lasts að „hlaupa frá orfinu“ til að þjóna slíkum málstað. Í raun héldu þó andmælendur sæsímans fram enn nútímalegri tækni þar sem loftskeytin voru. Hvorugir drógu í efa að skeytasamband við útlönd væri hið mesta framfaramál fyrir Ísland, og vissulega gekk það eftir. Erlend fréttaskeyti fóru nú að setja svip á blöðin. Þegar íslensk mál komu til kasta konungs gátu þing og ráðherra haft við hann skeytasamband; ráðherraskipti var jafnvel hægt að afgreiða símleiðis. Langmestu máli skipti þó síminn fyrir alla þá sem önnuðust viðskipti milli Íslands og útlanda. Boðum, sem áður bárust á einni til þremur vikum eftir því hvernig stóð á skipaferðum, voru nú sendlar og símritarar ekki nema nokkra klukkutíma að koma til skila. Kaupsýslumenn fylgdust með verðlagi gegnum símann, skiptust á tilboðum og gerðu samninga með símskeytum, og greiðslur voru gerðar upp símleiðis gegnum bankana. Þetta var ekki aðeins hagræði fyrir alla aðila, heldur gerði það líka hægara að stjórna viðskiptum frá Íslandi í stað þess að hafa aðalstöðvar erlendis eða treysta á forsjá erlendra umboðsmanna. Þannig stuðlaði síminn að því að færa heildverslunina inn í landið. Þar lögðust á eitt áhrif símans og aukinnar bankaþjónustu sem fylgdi tilkomu Íslandsbanka tveim árum áður.
Uppkastið
Landsbankafarganið
Bræðingurinn
Kosningarnar 1911 færðu Heimastjórnarflokki þingmeirihluta, og var Hannes Hafstein sjálfsagt ráðherraefni. Kristján Jónsson sagði þó ekki af sér fyrr en þing kom saman 1912.
Þá tók Hannes við, þó ekki sem ráðherra Heimastjórnarflokksins, heldur safnaði hann um sig þorra þingheims í nýjan flokk: *Sambandsflokkinn.*Ætlun hans var að gera nýja tilraun til að koma uppkastinu í gegn með einhverjum lagfæringum. Sams konar tilraun hafði Hannes gert eftir kosningarnar 1908: fengið dönsku stjórnina til að bjóða vissar orðalagsbreytingar á uppkastinu, en sjálfstæðismenn gátu ekki, eftir kosningasigurinnDesign, látið sér svo lítið nægja. Nú var hugmyndin að reyna svipaða aðferð, en án flokkadeilna: mynda fyrirfram svo breiða fylkingu að hún gæti stýrt uppkastinu endurbættu gegnum nýjar kosningar.
Svo breið var fylkingin að um skeið voru aðeins Skúli Thoroddsen og tveir landvarnarmenn eftir í Sjálfstæðisflokknum, allir aðrir þingmenn komnir í Sambandsflokkinn, og komu þeir sér saman um hvaða umbóta þeir skyldu leita á uppkastinu; kölluðu andstæðingar hugmyndir þeirra „bræðinginn“. En málið strandaði á Dönum sem nú kærðu sig ekkert um uppkastið nema þeir fengju breytt nokkrum ákvæðum þess sér í hag.
Hannes Hafstein kom frá Kaupmannahöfn með óformlegt tilboð („grútinn“) sem hann treysti sér ekki til að mæla með við þingið 1913. Sambandsflokkurinn fór nú að riðlast þegar málið, sem hann var myndaður um, fékk engan framgang. Starfhæfur stjórnarmeirihluti var brátt úr sögunni, þótt ekki væri meirihluti fyrir vantrausti á Hannes. Hann gegndi því ráðherraembætti fram yfir kosningar sem efnt var til 1914.
Fánamálið
Fánanefndin 1913
Eftir heimkomu sína skipaði ráðherra hinn 30. desember 1913 nefnd “til þess að taka gerð fánans til rækilegrar íhugunar, kynna sér eftir föngum hvað fullnægja myndi óskum þjóðarinnar í þessu efni og koma fram með tillögur til stjórnarinnar um lögun og lit fánans svo snemma að stjórnin geti gert Alþingi, þá er það kemur saman næst, kost á að láta uppi skoðun sína um þær.”
Í nefndinni voru skipaðir Guðmundur Björnsson landlæknir formaður, Matthías Þórðarson þjóðminjavörður, Ólafur Björnsson ritstjóri, Jón Jónsson (Aðils) dósent og Þórarinn B. Þorláksson lismálari. Eins og áður er vikið að, var talið af sumum, að bláhvíti fáninn líktist svo mjög grískum fána, að konungur myndi eigi vilja á slíka fánagerð fallast fyrir Ísland. Leitaði ráðherra að beiðni fánanefndar álits konungs á því, hvort hann myndi vilja löggilda bláhvíta fánann. Svar konungs var neikvætt, þar að fáninn líktist um of grískum fána. Vegna þessara andstöðu konungs hætti nefndin við að gera tillögu um bláhvíta fánann. Einnig var álitið eftir athugun, sem skólastjóri Stýrimannaskólans gerði, að slíkur fáni kynni í miður góðu skyggni að reynast of líkur sænska fánanum, sem er gulur kross í bláum feldi, eins og kunnugt er.
Fánanefndin skilaði tveimur tillögum um liti fánans:
(1) Fáninn skyldi vera heiðblár með hvítum krossi og hárauðum krossi innan í hvíta krossinum, eða
(2) Hvítur með heiðbláum krossi og hvítri og blárri rönd utan með beggja vegna.
Segir nefndin í greinagerð sinni að vissa sé fyrir því eins og ráðherra sé kunnugt, að konungur muni staðfesta hvora sem sé af þessum tveimur fánagerðum. Á fyrsta degi Alþingis 1914, 1. júlí gerði ráðherra, Hannes Hafstein, grein fyrir hvað gerst hefði í fánamálinu og lét útbýta skýrslu fánanefndarinnar.
Lýsti ráðherra meinbugum, er á því væru að fá bláhvíta fánann staðfestan, en á eindæmi hefði hann ekki talið fært að gera tillögu til konungs um aðra gerð. Hefði hann því skipað áðurgreinda nefnd í málið. Ætlaðist ráðherra til að málið yrði rætt í sameinuðu þingi og a.m.k fyrst fyrir luktum dyrum, en Skúli Thoroddsen, Bjarni Jónsson og Sigurður Eggerz báru hinn 3. júlí fram í neðri deild Alþingis tillögu til þingsályktunar um að deildin kysi sjö manna nefnd til þess að íhuga fánamálið og koma fram með tillögur er að því lytu. Taldi framsögumaður, Skúli Thoroddsen, að fánamálið væri íslenskt löggjafarmál og hefði síðasta þing ætlast til þess að ráðherra legði fram lagafrumvarp um fánann, en eigi að viðhöfð yrði sú aðferð, sem raun væri á orðin. Hannes Hafsteinn lagðist fast gegn tillögunni. Hún var eigi að síður samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og nefndin kjörin. Málið var þó rætt á lokuðum fundi í sameinuðu þingi eins og ráðherra ætlaðist til. En í efri deild var einnig kosin nefnd í málið, fimm manna, og sameinuðust nefndirnar og komu sameiginlega fram með nefndarálit og tillögur í sameinuðu þingi. Nefndarmenn vildu nota konungsúrskurðinn frá 22. nóvember 1913 til þess að fá sérfána. Með því væri nokkuð unnið en engu tapað. Skúli Thoroddsen og Bjarna frá Vogi fannst þó of skammt gengið. Kynni sérfáni að draga úr áhuga manna á fullgildum fána. Einnig virtist þeim og fleirum að málið hefði átt að afgreiðast sem löggjafarmál eins og Alþingi hefði ætlast til, en ekki með konungsúrskurði. Um liti fánans voru menn ekki sammála. Sumir vildu bláhvíta fánann að viðbættum stórri hvítri stjörnu í efri stangarreit og loks vildu sumir fána þann sem fánanefndin gerði að aðaltillögu sinni, hvítan kross í bláum feldi með rauðan kross í miðju.
Í sameiginlegri tillögu nefnda efri og neðri deilda til þingsályktunar um gerð fánans var í fyrsta lagi mælt með bláhvíta fánanum óbreyttum. Í öðru lagi með þeim fána að viðbættri stórri hvítri fimmblaða stjörnu í efra stangarreit og í þriðja lagi með þrílita fánanum. Sjö nefndarmenn rituðu þó undir nefndarálitið með fyrirvara og einn (Guðmundur Björnsson) lýsti sig samþykkan öllu, sem ekki bryti í bága við álit hinnar stjórnskipuðu fánanefndar. Síðan báru fjórir þingmenn,Guðmundur Hannesson, Sigurður Gunnarson, Sigurður Stefánsson og Pétur Jónsson, fram breytingartillögu, er fól í sér að hverfa frá að mæla með stjörnufánanum. Var sú breytingartillaga samþykkt með 20 atkvæðum gegn 18, og þar með ákveðið að mæla einungis með bláhvíta fánanum og þrílita fánanum. Þess má geta að nokkrar umræður urðu um kostnaðinn við hina stjórnskipuðu fánanefnd, sem mun hafa verið fyrsta milliþinganefndin, sem skipuð var hér á landi. Gerði Einar Arnórsson fyrirspurn á þingi 1915 um kostnaðinn, ekki til að hneykslast á honum, heldur til að eyða kviksögum, sem um hann gengju. Sagði fyrirspyrjandi að þess hefði jafnvel verið getið í blöðum að greiddar hefðu verið til nefndarinnar sex þúsund krónur og ógreiddar væru tvö þúsund krónur. Upplýsti ráðherra að allur kostnaður við nefndina hefði orðið 6.640,26 krónur.
Neitun konungs
Ráðherraskipti urðu á þingtímanum. Hannes Hafsteinn lét af embætti, en Sigurður Eggerz tók við. Á ríkisráðsfundi í Kaupmannahöfn 30. nóvember 1914 skýrði ráðherra konungi frá gangi fánamálsins og lagði til að konungur staðfesi þrílita fánann. En konungur neitaði að svo komnu að gefa út úrskurð um gerð fánans, þrátt fyrir gefið fyrirheit. Stafaði þetta af því að deila var á milli þings og ráðherra annarsvegar og konungs hinsvegar um uppburð íslenskra sérmála í ríkisráði og neitaði konungur að staðfesta stjórnarskrárfrumvarp, er Alþingi hafði samþykkt og ráðherra lagt fyrir með ákveðnum fyrirvara um uppburð íslenskra sérmála fyrir konungi. Hafði ráðherra fyrst lagt stjórnarskrárfrumvarpið fyrir konung til staðfestingar, og er konungur synjaði, lýsti ráðherra því yfir að hann bæðist lausnar. Konungur neitaði einnig að gefa út úrskurð um gerð íslenska sérfánans, þótt hann hefði áður sagt, eins og í skýrslu fánanefndar greinir, að hann myndi staðfesta hvora þá fánagerð, sem nefndin hefði bent á. Ráðherra tók þá fram, að neitun konungs um að gefa út fánaúrskurðinn styrkti sig enn betur í þeirri fyrirætlun að segja af sér ráðherraembætti og gerði hann það á þessum ríkisráðsfundi.
Sérfáni
Nokkru síðar tók Einar Arnórsson við ráðherraembætti og 19. júní 1915 var gefinn út konungsúrskurður, sem með tilvísun til konungsúrskurðar frá 22. nóvember 1913 ákvað gerð fánans svo:”Heiðblár (ultramarineblár) með hvítum krossi og hárauðum krossi innan í hvíta krossinum. Armar krossana skulu ná alveg út í jaðra fánans á alla fjóra vegu. Breidd krossmarksins skal vera 2/9 af breidd fánans, en rauði krossinn helmingi mjórri, 1/9 af breidd fánans. Reitirnir við stöngina skulu vera rétthyrndir ferhyrningar og alla hliðar þeirra jafnstórar; ytri reitirnir skulu vera jafnbreiðir stangarreitunum, en helmingi lengri. Hlutfallið milli breiddar fánans og lengdar hans verður18:25.” Þetta er hin sama fánagerð og konungur neitaði að staðfesta 30. nóvember 1914. Þessi fáni var einungis sérfáni, en ekki hið þráða fullveldistákn.
Siglingafáni
Það leið þó ekki á löngu áður en fánamálið bar aftur á góma. Bændaflokkurinn hafði á stefnuskrá sinni 1915 að fá sem fyrst viðurkenndan íslenskan siglingafána. Stjórnarskipti urðu 1917. Einar Arnórsson fékk lausn, Jón Magnússon myndaði ráðuneyti með Birni Kristjánssyni og Sigurði Jónssyni, en síðar á árinu kom Sigurður Eggerz í stað Björns. Að ósk sjálfstæðisfélagsins í Reykjavík þreifaði forsætisráðherra fyrir sér vorið 1917 hjá dönsku stjórninni um möguleika á því að fá siglingafána, en C.Th. Zahle, sem þá var forsætisráðherra, kvaðst ekki hafa búist við að því máli yrði hreyft svo fljótt eftir afgreiðslu sérfánamálsins 1915 og minnti á ummæli sín í ríkisráði 22 . nóvember 1913, að breytingar á hinum almenna danska siglingafána yrði að bera undir Ríkisþingið. Gæti hann ekki sætt sig við að Íslendingar tækju slíkt mál upp eitt sér.
En ef fara ætti að breyta sambandinu milli Íslands og Danmerkur væri réttara að taka sambandsmálið upp í heild. Óráðlegt var og talið af hálfu sumra í Danmörku að taka málið fyrir, einkum siglingafánamálið, meðan á heimsstyrjöldinni stæði. Þegar Alþingi kom saman í byrjun júlí 1917 skýrði forsætisráðherra alþingismönnum frá þessum viðræðum. Tíu þingmenn báru fram tillögu um kosningu sjö manna nefndar til þess að íhuga og koma fram með tillögur um ráðstafanir til að “ná sem fyrst öllum vorum málum í vorar hendur og fá viðurkenning fullveldis vors.” Var tillagan samþykkt í einu hljóði og nefndin kjörin. Nefndin bar síðan fram svofellda tillögu: ”Alþingi ályktar að skora á ríkistjórnina að sjá um, að Íslandi verði þegar ákveðinn fullkominn siglingafáni með konungsúrskurði og ályktar að veita heimild til þess að svo sé með málið.”
Bjarni frá Vogi mælti fyrir tillögunni og taldi höfuðnauðsyn að Íslendingar eignuðust eigin siglingafána, þar sem enginn vissi hvenær þeim kynni að verða meinað að sigla undir danska fánanum og kynnu flutningar til landsins að stöðvast. Forsætisráðherra lýsti því yfir að stjórnin myndi leggja fram alla sína krafta til að fá málinu framgengt. Var tillagan síðan samþykkt einróma í neðri deild. Í efri deild kom fram frumvarp um fána, flutt af Magnúsi Torfasyni og Karli Einarssyni, en niðurstaðan varð sú, að fánatillagan frá neðri deild var einnig borin fram í efri deild og afgreidd einróma og í fullu samráði við flutningsmenn fánafrumvarpsins um fána eða þingsályktun um konungsúrskurð um fullkominn siglingafána. Að lokum sameinuðust allir um þingsályktunarleiðina, því að aðalatriðið væri vilji þingsins, en ekki formið sem hann birtist í.
Forsætisráðherra Jón Magnússon bar fram tillögu um siglingafána upp fyrir konungi í ríkisráði 22. nóvember 1917, en konungur synjaði, enda lagðist Zahle, forsætisráðherra Dana, eindregið gegn málinu. Jón Magnússon gerði ekki synjun konungs að fráfaratriði og baðst ekki lausnar en sagði að Danir mættu ekki skilja svo, að Íslendingar legðu ekki ríka áherslu á málið enda vitað með vissu að Alþingi myndi ekki láta málið niður falla.
Sambandsmálið og fáninn
Síðan varð rás viðburðanna sú að á næsta ári var skipuð nefnd af hálfu Dana og Íslendinga til þess að fjalla um sambandsmál landanna. Hóf nefndin störf í Reykjavík sumarið 1918. Sambandslög Íslands og Danmerkur voru samþykkt á Alþingi og Ríkisþinginu í Kaupmannahöfn og staðfest af konungi 30. nóvember 1918. Þann dag voru einnig gefin út bráðabirgðalög um að ekkert íslenskt skip mætti frá 1. desember hafa annan þjóðfána uppi en hinn íslenska. Þá var gefinn út nýr konungsúrskurður um fánann. Var þar í engu breytt lögun og lit fánans frá því sem ákveðið var 1915, en bætt við ákvæði um að stjórnin og opinberar stofnanir skuli nota fána klofinn að framan og skuli nánari ákvæði um notkun klofna fánans sett með sérstökum konungsúrskurði.
Til þess að fullnægja því ákvæði fánaúrskurðarins frá 1915 “að á húsi eða lóð Stjórnarráðs Íslands sé jafnframt dreginn upp hinn klofni Dannesbrogsfáni á ekki óveglegri stað né rýrari að stærð heldur en íslenski fáninn” voru sumarið 1915 reistar tvær fánastengur á baklóð Stjórnarráðshússins, önnur fyrir íslenska fánann, hin fyrir Dannebrogsfánann. Fyrir 1. desember 1918 var svo fánastöng reist yfir dyrum Stjórnarráðshússins svo sem enn er, en hinar stengurnar voru auðar 1. desember.
Fullveldisfáni
Á hádegi sunnudaginn 1. desember 1918 var klofinn fáni dreginn að húni á fánastöng Stjórnarráðshússins er sambandslögin gengu í gildi. Sigurður Eggerz fjármálaráðherra, er gegndi störfum forsætisráðherra í fjarveru Jóns Magnússonar sem var í Kaupmannahöfn, flutti ræðu af þrepum Stjórnaráðshússins og sagði m.a.: “Og í gær hefur konungurinn gefið út úrskurð um þjóðfána Íslands, sem blaktir frá því í dag yfir íslensku ríki ... Fáninn er tákn fullveldis vors. Fáninn er ímynd þeirra hugsjóna, sem vor á fegurstar, hvert stórverk, sem unnið er af oss, eykur veg fánans, hvort sem það er unnið á höfunum, í baráttunni við brim og úfnar öldur eða á svæði framkvæmdanna eða vísindum og fögrum listum. Því göfugri sem þjóð vor er, þess göfugri verður fáni vor. Vegur hans og frami er frægð þjóðar vorrar ... Vér biðjum alföður að styrka oss til að lyfta fánanum til frægðar og frama ...”
Um leið og fáni hins fullvalda íslenska ríkis var dreginn að húni, kvað við tuttugu og eitt fallbyssuskot frá varðskipinu “Islands Falk”. Skipherra varðskipsins, Victor Lorenz Lorck, flutti ávarp, og einnig forseti sameinaðs Alþingis, Jóhannes Jóhannesson. Loks var leikinn konungssöngurinn og danski og íslenski þjóðsöngurinn.
Klofinn fáni (tjúgufáni) var notaður 1. desember 1918 á Stjórnaráðshúsinu, þótt ekki hefði þá verið gengið frá ákvæðum um gerð hans, og var það ekki gert fyrr en 12. febrúar 1919. Endanleg gerð tjúgufánans var að því er hlutföll varðar, dálítið frábrugðin fánanum, sem notaður var 1. desember. Sá fáni er nú varðveittur í Þjóðminjasafni Íslands (nr. 7961).
Fyrirvarinn
Stjórnarskrá heimastjórnarinnar, sem í flestu var óbreytt frá því sem valtýingar höfðu samþykkt á þingi 1901, þótti brátt bagalega úrelt. Konungkjör sex þingmanna átti t.d. illa við í þingræðisskipulagi, svo og atkvæðislausir þingforsetar. Þinghald á tveggja ára fresti var orðið of strjált. Og kosningarétturinn, sem að vísu var rýmri en á 19. öld en náði þó hvorki til kvenna né vinnuhjúa, samrýmdist ekki nýjum hugmyndum um lýðræði og jafnrétti.
Þegar Alþingi hafði von um skjóta niðurstöðu í sambandsmálinu sætti það sig við að bíða með stjórnarskrárbreytingu, enda myndu sambandslög gefa ný tilefni til að lagfæra stjórnarskrána.
Þegar ekki sá fram á neina lausn á sambandsmálinu, eins og bæði 1911 og 1913, vildu menn stjórnarskrárbreytingu fremur en ekkert. Þar þurfti þó að leysa viðkvæmt deilumál við Dani, kennt við ríkisráðsákvæðið,þ.e. ákvæði í stjórnarskránni frá 1903 sem tiltekur að ráðherra Íslands skuli bera mál upp fyrir konungií ríkisráðiþar sem dönsku ráðherrarnir áttu líka sæti. Þetta var skilyrði Dana fyrir tilboðinu um heimastjórn, og höfðu flestir sætt sig við það á sínum tíma (allir þingmenn nema einn), þó að það væri að skilningi Íslendinga ekki rétt form. En nú hafði gagnrýni á þessa skipan harðnað svo mjög að útilokað var fyrir Alþingi að fjalla um stjórnarskrána án þess að breyta þessu ákvæði, þó að Danir teldu það enn sem fyrr nauðsynlegt. Alþingi fann þá lausn 1913 að leggja það í vald konungs hvar hann léti bera upp fyrir sig málefni Íslands, og var reyndar ljóst að það yrði þá í ríkisráðinu.
Í kosningunum til aukaþings 1914 voru flokkslínur býsna óljósar, en þegar á þing kom myndaðist nýr meirihluti, kenndur við Sjálfstæðisflokkinn „og samverkamenn hans“, og valdi sem ráðherraefni Sigurð Eggerz sýslumann.
Löggjafarstarf
Eitt af því sem hvatti Íslendinga til að berjast fyrir innlendum ráðherra var sú trú að athafnasamari stjórn í nánari tengslum við Alþingi myndi stuðla að virkara löggjafarstarfi. Það gekk eftir. Fyrstu þingum heimastjórnartímans tókst að koma í lög óvenjulegum fjölda stórmála. Sum voru undirbúin á vegum þingsins sjálfs, annaðhvort af milliþinganefndum eða einstökum mönnum, þó að ráðherra legði þau svo fram á þingi. En hið nýja stjórnarráð í Reykjavík var líka afkastamikið við að búa mál til þings.
Á þremur þingum, 1905, 1907 og 1909, voru 96 stjórnarfrumvörp afgreidd sem lög. Þar á meðal var ný heildarlöggjöf um nokkur grundvallarsvið samfélagsgerðarinnar: um fátækraframfæri og um sveitarstjórnir 1905 ásamt margvíslegri löggjöf um landbúnað; fræðslulög og vegalög 1907 ásamt syrpu af lögum um málefni presta og safnaða; og 1909 lög um almennan ellistyrk.
Flokkar og ráðherrar
Stjórnmálaflokkar heimastjórnartímans voru fyrst og fremst þingflokkar, en í lauslegum tengslum við áhrifamenn utan þings, ekki síst eigendur og ritstjóra blaðanna. Frambjóðendur til þings treystu á persónufylgi í kjördæmum sínum ekki síður en flokksfylgi, og stundum var óljóst hvaða flokki þeir myndu fylgja að kosningum loknum.
Heimastjórn 1904-1918