Jarðhræringar
Ísland er eldfjallaland á flekamótum Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans sem liggja frá suðvestri til norðausturs og mynda gosbelti landsins. Á þessu svæði eru jarðskjálftar eru tíðir og eldgos algeng. Með jarðskjálftamælingum má fylgjast með hreyfingum í jarðskorpunni og meta þá hættu sem af þeim stafar. Mælingar hafa einnig forspárgildi í aðdraganda eldgosa.
Veðurstofa Íslands annast rauntímavöktun á jarðskjálftum, eldgosum, kvikuhreyfingum og jökulhlaupum á Íslandi með rekstri landsnets jarðskjálfta- og GPS-mæla og kortleggur jarðskjálftavirkni landsins. Hún sendir út viðvaranir um þessa þætti þegar þörf krefur. Enn fremur safnar stofnunin upplýsingum um yfirstandandi eldgos og öskufall frá þeim þegar ástæða þykir til, og veitir viðbragðsaðilum og almenningi upplýsingar þar að lútandi.
Þá aflar Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands þekkingar um eðli jarðhræringa með grunnrannsóknum á ýmsum þeim ferlum sem eru sérstaklega virk á Íslandssvæðinu, s.s. í skorpu og möttli jarðar, í eldstöðvum og jarðhitasvæðum.
Sjá einnig:
Veður og náttúruvá