Lífeyrismál
Íslenska lífeyriskerfið skiptist í þrjá megin þætti, almannatryggingar, lífeyrissjóði og frjálsan einstaklingsbundinn sparnað. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með framkvæmd og eftirlit laga um lífeyrissjóði og setur ráðherra reglugerðir á grundvelli laganna. Fjármálaeftirlitið annast eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða og vörsluaðilum lífeyrissparnaðar.
Lífeyrismál