Rammaáætlun
Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, eða rammaáætlun eins og hún er jafnan nefnd, er ætlað að stuðla að því að að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi. Í áætluninni er leitast við að taka tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta sem og hagsmuna þeirra sem nýta þessi gæði.
Rammaáætlun byggir á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og er í formi þingsályktunartillögu sem umhverfis- og auðlindaráðherra leggur fram í samráði við ráðherra orkumála eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti.
Þróað hefur verið ákveðin aðferðafræði til þess að komast að niðurstöðu um innihald þingsályktunartillögunnar. Í stuttu máli gengur ferlið út á að sjálfstæð verkefnisstjórn, sem er ráðherra til ráðgjafar, gerir tillögu að flokkun landsvæða í verndarflokk, orkunýtingarflokk eða biðflokk eftir að hafa grandskoðað ólíka þætti sem hafa áhrif á flokkunina. Í því skyni veita faghópar skipaðir sérfræðingum á ýmsum sviðum verkefnisstjórninni ráðgjöf að lokinni upplýsingasöfnun og eftir atvikum rannsóknum.
Verkefnisstjórnin leitar auk þess samráðs við hagsmunaaðila, stofnanir hins opinbera, almenning og frjáls félagasamtök við gerð tillagnanna.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög og reglur um rammaáætlunÁhugavert
Skýrsla verkefnisstjórnar 5. áfanga rammaáætlunar 2021-2025Skýrsla verkefnisstjórnar 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða 2017-2021Lokaskýrsla verkefnisstjórnar 3. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar 2013 - 2017Gagnlegir tenglar
Ítarlegar upplýsingar um stöðu rammaáætlunar, hugmyndafræði, sögu og gögn er að finna á vef áætlunarinnar.