Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
17 apríl 2009
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samvinnan
Fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir og frjáls félagasamtök geta fjölgað starfsmönnum með þátttöku í vinnumarkaðs- úrræðum. Samvinna er milli Vinnumálastofnunar og atvinnulífsins um ýmsar leiðir í þessum efnum. Atvinnurekandi ræður einstakling sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Atvinnurekandinn greiðir einstaklingnum laun samkvæmt gildandi kjarasamningum en á móti þeim greiðslum greiðir Vinnumálastofnun atvinnurekandanum grunnatvinnuleysisbætur einstaklings ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð.
Nánari upplýsingar um mismunandi tegundir vinnumarkaðsúræða og reglur sem um þær gilda eru á heimasíðu Vinnumálastofnunar.