Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21 október 2011
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Vinna og heimilislíf – fyrir og eftir bankahrun
Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur vinnur fyrir velferðarvaktina að úttekt úr ýmsum gögnum Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands undir forskriftinni: Vinna, fjölskyldulíf og velferð: Ísland fyrir og eftir bankahrun. Hann kynnti fyrstu niðurstöður fyrir velferðarvaktinni á fundi hennar, 4. október sl.