Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30 ágúst 2012
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Bréf velferðarvaktarinnar til sveitarstjórna o.fl.

Velferðarvaktin hefur sent sveitarstjórnum og skólanefndum sínar árlegu kveðjur í upphafi skólaárs, hvetur þær til að huga sérstaklega að líðan barna í vanda, fagnar um leið aðgerðum skólastjórnenda til að tryggja velferð barna í kjölfar efnahagshrunsins og leggur áherslu á að kostnaður heimilanna vegna skólastarfs hindri í engu þátttöku barna í leik og starfi.