02 september 2025
/
Fundur Velferðarvaktarinnar 2. september 2025
74. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn hjá ÖBÍ réttindasamtökum og á Teams.
2. september 2025, kl. 14.00-16.00.
1. Nýtt örorkulífeyriskerfi.
Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingarstofnunar, fór í stuttu máli yfir stöðuna varðandi breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem tekið höfðu gildi daginn áður, 1. september. Tryggingastofnun hefur verið lykilaðili í framkvæmdinni og undirbúningur staðið lengi yfir.
2. Tengiráðgjafar – gegn félagslegri einangrun eldra fólks.
Bylgja Sigmarsdóttir, tengiráðgjafi í Árborg, sagði frá framkvæmd verkefnisins í Árborg, sem er eitt þeirra sex sveitarfélaga sem taka þátt í tilraunaverkefni með ráðningu tengiráðgjafa.
3. Farsældarráð á Suðurnesjum.
Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnisstjóri farsældar barna á Suðurnesjum, kynnti Farsældarráð Suðurnesja, sem stofnað var nýverið á svæðinu. Ráðinu er ætlað að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur, meðal annars með því að styrkja samstarf og tryggja jöfn tækifæri barna til þátttöku, náms og félagslegrar virkni þvert á kerfi.
4. Fréttir úr baklandinu
Fulltrúar í vaktinni frá Hjálparstarfi kirkjunnar og Samtökum um kvennaathvarf fóru yfir það helsta í starfsemi samtakanna og helstu verkefni um þessar mundir.
5. Önnur mál
- Farið var yfir og samþykkt að senda erindi til félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra er varðar þjónustu við börn umsækjenda um alþjóðlega vernd.